Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Kjartan Kjartansson skrifar 8. maí 2026 14:06 Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar og veðurfræðingur, treystir sér ekki til að segja til hvaða öþrifaráða andstæðingar Evrópusambandsaðildar gætu gripið til ef Ísland gengur í sambandið en minnir á að andstæðingar bandaríska herliðsins hafi sprengt sprengjur á sínum tíma. Vísir Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar, gefur í skyn að til ofbeldis geti komið ef Ísland gengur í Evrópusambandið í viðtali við enskumælandi fjölmiðil. Hann segir stuðningsmenn aðildar „hata lýðræðið eins og pestina“.
Ummælin lætur Haraldur falla í umfjöllun um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið í nýjasta hefti Reykjavík Grapevine. Heimssýn eru samtök andstæðinga Evrópusambandsaðildar. Í viðtalinu segir Haraldur algerlega ljóst að allt verði lagt í sölurnar til þess að koma í veg fyrir að Ísland gangi í sambandið og sömuleiðis til þess að koma því þaðan út ef af aðild verður. „Ég er ekki ofbeldisfullur maður og mun tala gegn ofbeldi ef það kemur til tals, en það er alls kyns fólk sem hefur mjög sterkar skoðanir á þessu máli og ég veit ekki til hvaða örþrifaráða það tekur. Ég bara veit það ekki,“ segir Haraldur við blaðið. Vísar Haraldur til þess að andstæðinga bandaríska herliðsins á Íslandi hafi meðal annars sprengt sprengjur í Hvalfirði á sínum tíma. „Og þetta mál er mun stærra átakamál, miklu stærra. Það eru enn heitari tilfinningar um það en voru nokkru sinni um herstöðvarmálið,“ hefur blaðið eftir Haraldi á ensku. Afnema lýðræði á Íslandi Formaður Heimssýnar fer hörðum orðum um ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur og stuðningsfólk Evrópusambandsaðildar. „Þetta lið hatar lýðræðið eins og pestina. Þetta snýst um að afnema lýðræðið á Íslandi. Ríkisstjórnin vill að við göngum í ESB og það þýddi endalok lýðræðis eins og við skiljum það,“ segir Haraldur. Ríkisstjórnin stefnir á þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort aftur verði rætt við ESB um mögulega aðild Íslands í ágúst. Haraldur segir stuðningsmenn aðildar hata lýðræðið.Vísir Stuðningsmenn aðildar hafi gefist upp á sjálfstjórn Íslendinga yfir eigin málefnum. „Fólk hefur gefist upp á lýðræðinu. Það treystir á valdamikinn aðila sem ekki er hægt að kjósa í burtu til þess að leysa úr málunum,“ fullyrðir formaðurinn. Þá segist hann telja að smáríki eins og Malta hafi engin áhrif eða fullveldi innan Evrópusambandsins. „Í smáríkjum ESB er lýðræði í þessum skilningi horfið,“ segir hann við blaðið. Vill ekki vera þegn „fransk-prússnesks herveldis“ Jafnvel þó að Bretland sé nýlegt fordæmi um að hægt sé að ganga úr Evrópusambandinu telur Haraldur það víti til að varast. Sambandið hafi gert Bretum það dýrkeypt að ganga úr því og þeir hafi aðeins komist út vegna þess að Frakkar og Þjóðverjar hafi þurft á aðgangi að breskum markaði að halda. Sama yrði ekki upp á teningnum ef Íslendingar vildu ganga úr sambandinu. Fordæmi yrði frekar gert úr Íslendingum ef þeir reyndu að segja skilið við bandalagið. „Það sem tapast á einum degi getur tekið hundruð ára að endurheimta,“ segir Haraldur. Segir hann Evrópusambandsaðild Íslands snúast um mannréttindi. „Það eru mannréttindi að ég og afkomendur mínir verðum ekki þegnar fransk-prússnesks herveldis,“ segir formaður Heimssýnar.
Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira