Þjóðar­at­kvæða­greiðsla um ESB-viðræður

Þjóðar­at­kvæða­greiðsla um ESB-viðræður

Laugardaginn 29. ágúst 2026 fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB).

Fréttamynd

Segjast ekki ætla að skipta sér af at­kvæða­greiðslunni

Fulltrúar rússneskra stjórnvalda segjast ekki hafa neinn áhuga á því að hafa áhrif á þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi 29. ágúst um það hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Rússar hafa ítrekað verið sakaðir um að reyna að hafa áhrif á kosningar og atkvæðagreiðslur í Evrópu, meðal annars í Brexit-atkvæðagreiðslunni 2016.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Fimm­tíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu

Hart var tekist á um kostnað Íslands við mögulega ESB-aðild í Pallborðinu á Vísi í dag. Áfram Ísland segir árlegan kostnað geta numið fimmtíu milljörðum króna en fulltrúar já-hreyfinganna hafna þeirri tölu alfarið og segja villandi að setja hana fram án þess að mögulegur ávinningur sé tekinn með.

Innlent
Fréttamynd

Hin hliðin ljúgi að lands­mönnum

Forsvarsfólk bæði já- og nei- hreyfinga saka hina hliðina um að hafa farið með rangt mál frá því að kosningabarátta hófst. Þau mættust í Pallborði Vísis í dag. Fréttamaður sem stýrði Pallborðinu hafði á orði að það væri um stund sem forsvarsmenn væru að ræða hvor sinn hlutinn, svo ólíkar væru áherslurnar.

Innlent
Fréttamynd

Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði

Fréttastofa Vísis verður reglulega með Pallborð fram að þjóðaratkvæðagreiðslunni um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Fyrsta Pallborðið fór fram klukkan 14 í dag þar sem fulltrúar tveggja já-hreyfinga og tveggja nei-hreyfinga tókust á um helstu álitaefni Evrópuumræðunnar.

Innlent
Fréttamynd

Allt gert til að stöðva birtinguna

Vorið 2009 tók við ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar, í kjölfar bankahrunsins. Eitt umdeildasta verkefni hennar varð umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Jón Bjarnason sat í stjórninni sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þótt hann væri sjálfur eindreginn andstæðingur aðildar.

Innlent
Fréttamynd

Helstu samsæriskenningarnar um Evrópu­sam­bandið

Íslendingar ganga að kjörborðinu þann 29. ágúst til að ákveða framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Í aðdraganda stórra sögulegra ákvarðana kraumar gjarnan óvissa og kvíði í samfélaginu og upplýsingaóreiða fer á flug.

Lífið
Fréttamynd

Um sex­tán þúsund greitt at­kvæði utan kjör­fundar

Rúm sextán þúsund hafa greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram þann 29 ágúst. Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu segir utankjörfundaratkvæðagreiðsluna ganga vel. Það sé mikill áhugi.

Innlent
Fréttamynd

Við­reisn fjar­lægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“

Færsla þar sem æðruleysisbæninni hafði verið breytt í svokallaða „krónuleysisbæn“ var birt í dag, sunnudaginn 16. ágúst, á Facebook-síðu Viðreisnar en henni var skömmu seinna eytt út. Framkvæmdastjóri Viðreisnar segir ástæðuna einfaldlega þá að viðbrögðin við færslunni hafi verið verri en búist var við en að það hafi aldrei verið ætlunin að særa neinn með þessari uppfærðu útgáfu af bæninni.

Innlent
Fréttamynd

Það er jóker í spilinu

Skoðanakannanir síðustu vikna virðast benda til þess að sífellt fleiri kjósendur séu búnir að gera upp hug sinn fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu eftir því sem hlutfall óákveðinna fer lækkandi. Þá virðist einnig sem hægt og rólega saxist á það forskot sem já-hliðin naut þegar mælingar hófust fyrst eftir að tilkynnt var um þjóðaratkvæðið.

Innlent
Fréttamynd

Sér­staða Ís­lands úti­lokar að líkindum aðild að ESB

Um samningsmarkmið í hugsanlegum aðildarviðræðum við ESB verður að tala opið og skýrt um sjávarútvegsmálin. Dæmi um skort á þessu er að finna í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar - það er fulltrúa ríkisstjórnarflokkanna - á tillögu utanríkisráðherra um að haldið verði þjóðaratkvæði um aðildarviðræður við ESB.

Umræðan
Fréttamynd

Velti allt á því hverjir mæti á kjör­stað

Miðað við nýjustu kannanir bendir allt til þess að þátttakan sjálf muni skipta mestu máli í komandi þjóðaratkvæðagreiðslum að mati prófessors í stjórnmálafræði. Yngra fólk hallist meira að já-inu en sé sömuleiðis talið ólíklegra til að mæta á kjörstað.

Innlent
Fréttamynd

Bændur í bar­áttu­hug á leið í her­ferð um landið

Bændur búa sig undir baráttu gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Búnaðarþing hefur hafnað því að aðildarviðræður verði teknar upp að nýju og á næstu dögum hefja Bændasamtökin fundarherferð um landið til að kynna sinn málstað.

Innlent
Fréttamynd

Enginn mark­tækur munur á jáurum og neiurum

Ekki er marktæktur munur á jáurum og neiurum samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup sem gefinn var út nú í dag. Ögn fleiri eru hlynnt áframhaldandi viðræðum en munurinn er tölfræðilega minniháttar.

Innlent
Fréttamynd

Sögu­sagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum

„Ég heyri utan að mér, að þar sem ég hafi verið staðinn að verki við að hlýða á erindi Dr Carls Baudanbacher á fundi í gamla Sjallanum, hljóti ég að vera genginn í björg andstæðinga Evrópusambandsaðildar. Þá er illa fyrir okkur komið, ef menn mega ekki hlusta á meinta andstæðinga, án þess að kalla yfir sig fordæmingu af einhverju tagi.“

Innlent
Fréttamynd

Bændur segja nei

95 prósent fulltrúa á Bændaþingi hafa samþykkt ályktun þess efnis að Búnaðarþing leggist gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu og þar með að hefja á ný viðræður um aðild.

Innlent
Fréttamynd

„Þjóðin á rétt á að vita“

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir það skýrt eftir viðtal við utanríkisráðherra í Íslandi í dag að ríkisstjórnin vilji fyrst fá umboð þjóðarinnar og síðan ákveða endanleg samningsmarkmið. Guðrún segist treysta þjóðinni.

Innlent
Fréttamynd

„Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“

Utanríkisráðherra segist ekki ætla að láta stilla sér upp við vegg þegar hún var spurð að því hvort hún myndi ráðleggja þjóðinni að hafna aðildarsamningi, ef ekki fáist undanþágur í sjávarútvegi, þrátt fyrir þann mikla öryggislega ávinning sem hún telur að felist í aðild að Evrópusambandinu. 

Innlent