Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 8. maí 2026 13:49 Egill Hjaltalín myndlistarkennari í grunnskólanum í Stykkishólmi hefur sterkar skoðanir á því sem þarf að gera í atvinnumálum í bænum. Vísir/Bjarni Atvinnumálin voru ofarlega í huga íbúa Stykkishólms þegar fréttastofa tók púlsinn á þeim á dögunum til að fá að forvitnast um þau mál sem íbúar telja mikilvægust nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.
Egill Hjaltalín starfar sem myndlistarkennari við grunnskólann í Stykkishólmi en eins og gjarnan tíðkast í fámennari sveitarfélögum þá ganga menn í mörg störf og Egill var einmitt að sinna viðhaldi í skólanum þegar fréttamann bar að garði. Atvinnumálin vega þyngst í huga Egils nú þegar hann þarf að gera upp við sig hvaða flokk hann mun kjósa. „Skólinn er liggur við orðinn stærsti vinnustaðurinn í bænum. Það hefur ýmislegt breyst hérna. Á síðustu þrjátíu árum voru tvær trésmiðjur, þrjár eða fjórar fiskvinnslur og fullt af bátum hérna úti,“ segir Egill og bendir í átt að höfninni. „Núna er eiginlega ekkert eftir nema hótel og gistiheimili. Það liggur við að það eina sem sé eftir í Hólminum í dag sé að gista. Mér finnst þurfa að koma inn atvinnustarfsemi og laða eitthvað að og alls ekki fæla í burtu einhverja sem vilja koma hingað með verksmiðju eða álíka. Það verður að vera meira að gera hérna og meiri vinnu að fá, hvort sem það er ferðamennska, þörungar eða bara eitthvað. Fá eitthvað hingað inn.“ Egill er einn þeirra sem setti fram sínar kröfur fyrir kosningarnar í sérstökum kosningaþætti fréttastofu um Vestfirði og Vesturland. Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að neðan. Síðustu ár hefur verið mikil uppbygging í ferðamennsku og hefur þeim fjölgað sem sækja bæinn heim og skyldi engan undra því Stykkishólmur hlýtur að vera með fegurstu bæjum landsins (mat fréttamanns). Að mati Egils þarf að gera enn betur og tekur hann dæmi um ferðamennskuna á Snæfellsnesinu öllu. „Talað er um að það fari um 800 bílar á dag í kringum nesið en kannski 300 þeirra fara í hólminn því hólmurinn er út úr. Þess vegna vantar eitthvað sem laðar fólk að. Við vorum heppin með það að nú er að koma aðili sem ætlar að taka við Eyjaferðum en það var næstum dottið niður þegar Eimskip hætti með Baldur. Það er allavega eitthvað en að öðru leyti er þetta bara svefnpláss. Við erum með nokkur hótel hérna, Airbnb og gistingu en okkur vantar svolítið meira á móti og mér finnst meira að segja ekki einu sinni vera nógu mikið af veitingastöðum til að anna öllu þessu svefnplássi þannig að það vantar bara meira atvinnulíf í bæinn.“
Stykkishólmur Ferðaþjónusta Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tengdar fréttir Hefja gjaldtöku við höfnina í Stykkishólmi Frá og með morgundeginum hefst gjaldtaka á bílastæðum við höfnina í Stykkishólmi. Parka mun sjá um rekstur, greiðslulausnir og innheimtu gjalda. 29. júlí 2025 12:30 Röst leysir Baldur af hólmi Vegagerðin hefur samið við Torghatten Nord um kaup á ferjunni Röst. Skipið tekur að óbreyttu við ferjusiglingum á Breiðafirði í haust og leysir þar með ferjuna Baldur af hólmi. Til stóð upphaflega að leggja af ferjusiglingar um Breiðafjörð í vor. 7. júlí 2023 10:15 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Fleiri fréttir Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sjá meira
Hefja gjaldtöku við höfnina í Stykkishólmi Frá og með morgundeginum hefst gjaldtaka á bílastæðum við höfnina í Stykkishólmi. Parka mun sjá um rekstur, greiðslulausnir og innheimtu gjalda. 29. júlí 2025 12:30
Röst leysir Baldur af hólmi Vegagerðin hefur samið við Torghatten Nord um kaup á ferjunni Röst. Skipið tekur að óbreyttu við ferjusiglingum á Breiðafirði í haust og leysir þar með ferjuna Baldur af hólmi. Til stóð upphaflega að leggja af ferjusiglingar um Breiðafjörð í vor. 7. júlí 2023 10:15