Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Sindri Sverrisson skrifar 9. maí 2026 18:57 Kristall Máni Ingason skoraði magnað mark í bikarúrslitaleiknum. @sportsklubbenbrann Íslendingaliðið Brann var grátlega nálægt því að vinna Evrópuævintýramennina í Bodö/Glimt í úrslitaleik norsku bikarkeppninar í fótbolta í kvöld. Úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni.
Kristall Máni Ingason skoraði frábært mark fyrir Brann og þeir Jón Dagur Þorsteinsson og Freyr Alexandersson virtust ætla að fagna sigri áður en Bodö/Glimt jafnaði í 2-2 rétt fyrir lok venjulegs leiktíma. Staðan var svo 3-3 eftir framlenginguna, eftir að Brann jafnaði tveimur mínútum fyrir lok hennar, og því var gripið til vítaspyrnukeppni. Þar nýtti Bodö/Glimt fyrstu fjórar spyrnur sínar en Brann klúðraði tveimur og varð því að sætta sig við silfurverðlaunin. Titillinn blasti við Brann fimm mínútum fyrir leikslok Kristall Máni og Jón Dagur voru báðir í byrjunarliði Brann en Freyr skipti þeim af velli um miðjan seinni hálfleikinn, þegar Brann var enn 2-1 yfir. Bodö/Glimt komst yfir með sjálfsmarki á sjöundu mínútu en Brann breytti stöðunni í 2-1 á tveimur mínútum skömmu fyrir hálfleik. Felix Horn Myhre skoraði fyrst en þar gerði Nikita Haikin, markvörður Bodö/Glimt, slæm mistök. Haikin gerði svo aftur mistök þegar hann hreinsaði í burtu, beint á Kristal Mána sem skoraði frábært mark af um 45 metra færi. Brann virtist svo ætla að vinna í venjulegum leiktíma en á 86. mínútu tókst Bodö/Glimt að jafna, 2-2, með marki Ola Brynhildsen eftir hornspyrnu og því var gripið til framlengingar. Bætti upp fyrir mistökin og varði tvö víti Bodö/Glimt komst svo yfir þegar tíu mínútur voru eftir af framlengingunni en Horn Myhre náði í vítaspyrnu og jafnaði metin úr henni, á 118. mínútu. Því var gripið til vítaspyrnukeppninnar þar sem Haikin bætti upp fyrir mistök sín fyrr í leiknum og varði spyrnur Joachim Soltvedt og Markus Haaland.
Norski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira