Hverju ætla frambjóðendur í þínu sveitarfélagi að breyta til að tryggja uppbyggingu og viðhald nauðsynlegra innviða? Ingólfur Bender skrifar 11. maí 2026 10:33 Traustir innviðir eru undirstaða samkeppnishæfni Íslands. Ákvarðanir sveitarstjórna um uppbyggingu, viðhald og forgangsröðun innviða geta annaðhvort stutt við framþróun eða tafið fyrir henni. Vissir þú að sveitarfélagavegir eru víða holóttir og hættulegir og að innviðaskuld vegna 13.000 kílómetra sveitarfélagavega er metin allt að 90 milljarðar króna? Þá eru fasteignir sveitarfélaga víða í slæmu ástandi; um 9.000 fasteignir eru í eigu þeirra og 80% þeirra eru eldri en 20 ára. Þar að auki er ástand fráveitna og annarra grunninnviða sveitarfélaga víða mjög slæmt en viðhaldsskuld sveitarfélaga nemur um 300 milljörðum króna. Þetta eru tölur sem ekki er hægt að líta fram hjá. Þær eru merki um uppsafnaða vanrækslu sem hefur áhrif á öryggi, þjónustu og umhverfi fyrirtækja og heimila. Velferð íbúa og rekstur fyrirtækja byggir á traustum og góðum innviðum. Án slíkra innviða nær sveitarfélagið ekki að blómstra. Þegar innviðir eru ekki í lagi bitnar það á samkeppnishæfni, framleiðni minnkar og kostnaður eykst. Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna er tækifæri til að spyrja skýrra spurninga. Hvernig ætla frambjóðendur að takast á við viðhaldsskuldina? Hvernig verður forgangsröðun háttað? Hvernig á að tryggja örugga og hagkvæma uppbyggingu til framtíðar? Samtök iðnaðarins vekja athygli á slæmri stöðu innviða og leggja fram úrbótatillögur á vef samtakanna. Hefur þú spurt frambjóðendur í þínu sveitarfélagi hverju þau ætla að breyta? Höfundur er aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingólfur Bender Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Traustir innviðir eru undirstaða samkeppnishæfni Íslands. Ákvarðanir sveitarstjórna um uppbyggingu, viðhald og forgangsröðun innviða geta annaðhvort stutt við framþróun eða tafið fyrir henni. Vissir þú að sveitarfélagavegir eru víða holóttir og hættulegir og að innviðaskuld vegna 13.000 kílómetra sveitarfélagavega er metin allt að 90 milljarðar króna? Þá eru fasteignir sveitarfélaga víða í slæmu ástandi; um 9.000 fasteignir eru í eigu þeirra og 80% þeirra eru eldri en 20 ára. Þar að auki er ástand fráveitna og annarra grunninnviða sveitarfélaga víða mjög slæmt en viðhaldsskuld sveitarfélaga nemur um 300 milljörðum króna. Þetta eru tölur sem ekki er hægt að líta fram hjá. Þær eru merki um uppsafnaða vanrækslu sem hefur áhrif á öryggi, þjónustu og umhverfi fyrirtækja og heimila. Velferð íbúa og rekstur fyrirtækja byggir á traustum og góðum innviðum. Án slíkra innviða nær sveitarfélagið ekki að blómstra. Þegar innviðir eru ekki í lagi bitnar það á samkeppnishæfni, framleiðni minnkar og kostnaður eykst. Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna er tækifæri til að spyrja skýrra spurninga. Hvernig ætla frambjóðendur að takast á við viðhaldsskuldina? Hvernig verður forgangsröðun háttað? Hvernig á að tryggja örugga og hagkvæma uppbyggingu til framtíðar? Samtök iðnaðarins vekja athygli á slæmri stöðu innviða og leggja fram úrbótatillögur á vef samtakanna. Hefur þú spurt frambjóðendur í þínu sveitarfélagi hverju þau ætla að breyta? Höfundur er aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar