Lítið mál að halda jafnvægi á 4.500 króna sófa Birgir Olgeirsson skrifar 11. maí 2026 14:56 Egill Jón Agnarsson og Ísak Kukalj nutu sín í botn í sófanum úr Góða hirðinum sem kostaði 4.500 krónur. Félagarnir Egill Jón Agnarsson og Ísak Kukalj hafa vakið mikla athygli fyrir uppátæki sitt í síðustu viku þar sem þeir komu sófa fyrir á tveimur rafskútum frá Hopp og óku eftir Leirulæk í Laugardal. Þeir sáu myndband á Instagram þar sem nokkrir strákar höfðu gert slíkt hið sama. Þeir voru ekki lengi að ákveða sig, hoppuðu í Góða hirðinn, keyptu sófa á 4.500 krónur og „kýldu á þetta“. „
Þetta var án gríns minna mál en við höfðum ímyndað okkur. Við fundum bara út úr þessu strax,“ segir hinn 24 ára gamli Egill Jón í samtali við Vísi þegar hann er spurður hvernig hafi gengið hjá honum og Ísaki, 23 ára, félaga hans að aka sófanum og halda jafnvægi. „Þetta gekk vel og ég mæli með því að fólk prófi þetta. Það þarf bara að finna rétta sófann. Hann má alls ekki vera á fótum,“ segir Egill. Þeir óku tæpan kílómetra eftir Leirulæk en það voru ekki margir á ferli að sögn Egils. „Við rákumst á einhverja krakka sem spurðu hvað við værum að gera en það var svo sem enginn krakki mjög forvitinn um þetta,“ segir Egill. Nokkrir iðnaðarmenn hafi einnig veitt þeim eftirtekt. Það kom Agli og Ísaki í opna skjöldu hvað viðbrögðin við uppátækinu hafa verið jákvæð. „Sem er frábært en við höfðum ímyndað okkur að við myndum fá meiri skammir og hatur fyrir,“ segir Egill og nefnir í því samhengi að umræðan á Laugarness hverfissíðunni á Facebook geti verið frekar hörð. Vísir ræddi við Hopp um þetta uppátæki fyrr í dag en Kristín Hrefna Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Hopps var svo hrifin af því að hún vildi ráða félagana í vinnu. „Það fer svolítið eftir því hvaða starf hún vill fá okkur í,“ segir Egill léttur í bragði þegar þessi viðbrögð framkvæmdastjórans eru borin undir hann.
Reykjavík Rafhlaupahjól Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira