Aðstandendur „Kannabis Inc“ dæmdir í fangelsi Árni Sæberg skrifar 11. maí 2026 16:51 Davíð huldi andlit sitt þegar hann gekk inn dómsal við aðalmeðferð málsins og verjandi hans reyndi að koma í veg fyrir að af honum næðust myndir. Vísir/Árni Fjórir karlmenn hafa verið dæmdir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa selt ótilgreint magn af amfetamíni, hassi, maríhúana, kókaíni, MDMA, metamfetamíni, LSD, Diazepam, sveppum, nammi sem innihélt kannabis og óþekktum töflum. Í fórum þeirra fundust límmiðar merktir „Kannabis Inc“ og þeir áttu í samskiptum í gegnum spjall með sama heiti á Telegram.
Dómur þess efnis var kveðinn upp í morgun en hefur ekki verið birtur. Ríkisútvarpið greinir frá niðurstöðunni en í frétt miðilsins segir að Árni Khanh Minh Dao hafi verið dæmdur til fjögurra ára og sex mánaða fangelsisvistar og Davíð Viet Quoc Davíðsson til þriggja ára og fjögurra mánaða fangelsisrefsingar. Þriðji maðurinn hafi verið dæmdur til tuttugu mánaða fangelsisvistar og sá fjórði til átján mánaða. Sautján mánuðir tuttugu mánaða dómsins séu bundnir skilorði og fimmtán mánuðir þess átján mánaða. Einn karlmaður til viðbótar hefur verið ákærður fyrir að hafa smyglað allt að tuttugu kílóum af maríhúana til landsins í samstarfi við mennina en hans hlutur hefur verið klofinn frá málinu þar sem lögreglu hefur ekki tekist að hafa uppi á honum. Alls konar fíkniefni Vísir fjallaði ítarlega um aðalmeðferð málsins, sem fram um miðjan apríl síðastliðinn. Þar kom fram að þeir væru ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot, sem þeir hafi sammælst um að fremja, með því að hafa í félagi í ótilgreindan tíma og fram til 22. júlí 2024, útvegað, tekið á móti, varðveitt, pakkað, dreift og selt fíkniefni af óþekktu magni af og fyrir að hafa þann dag í sölu- og dreifingarskyni, í bifreiðinni og húsnæði í Reykjavík og Kópavogi sem var á vegum þeirra, haft í vörslum sínum mikið magn fíkniefna af alls kyns tegundum, sem útlistaðar eru í fréttinni hér að neðan: Árni var fyrstur til að gefa skýrslu þegar aðalmeðferð málsins hófst og hann kvaðst ekkert kannast við skipulagða brotastarfsemi eða sölu fíkniefna. Hann og meðákærðu væru aðeins vinir en ekki hluti af skipulögðum fíkniefnasöluhópi. Hann kannaðist þó við að hafa komið að tveimur húsum þar sem fíkniefnin fundust og að hafa sinnt ýmsum litlum verkefnum fyrir Davíð til þess að gera honum greiða. Til að mynda gekkst hann við því að hafa ekið Davíð til Keflavíkur þar sem til stóð að sækja manninn sem er ákærður fyrir að smygla maríhúana. Í stað þess að aka manninum frá Keflavík hafi þeir tveir tekið leigubíl til Reykjavíkur saman og Davíð farið á bílnum til baka. Í slæmu ástandi í skýrslutöku Davíð gaf einnig skýrslu og sagðist ekki hafa verið að selja fíkniefni en hann játaði þó að hafa haft tiltekin efni í vörslum sínum, bæði ætluð til einkanota og sölu. Þá sagðist hann ekki vita hvort hinir mennirnir þrír hefðu stundað fíkniefnasölu. Sækjandi málsins bar þá undir hann framburð hans hjá lögreglu, þar sem hann virtist greina frá því hvernig hann stýrði „Kannabis Inc“, tæki við pöntunum og útdeildi verkefnum til hinna þriggja. Fyrir dómi kvaðst hann hafa verið í mjög slæmu ástandi þegar hann var yfirheyrður hjá lögreglu. Hann hefði verið í fráhvörfum og sagt hvað sem er til þess að losna sem fyrst. Könnuðust mismikið við málið Þriðji maðurinn sagðist lítið sem ekkert muna eftir atvikum málsins, langt væri um liðið og hann hefði verið í neyslu á umræddum tíma. Hann hefði komist í samband við mennina þrjá sem ákærðir eru með honum í gegnum vin sinn, sem hann vildi ekki nefna. Hann hefði séð tækifæri í því að selja fíkniefni til þess að eignast pening. Hann kvaðst kannast við að hafa verið með mönnunum þremur í hópspjalli á Signal en þar hefðu þeir ekki talað um sölu fíkniefna. Hann hefði í eitt skipti farið í húsnæði sem mennirnir höfðu allir aðgang að til þess að sækja fíkniefni, sem hann seldi síðan í gegnum Telegram-síðuna „Kannabis Inc“ en Inc er enska og þýðir það sama og ehf. Fjórði maðurinn gaf þá skýrslu og virtist muna betur eftir atvikum en hinir þrír og kannast meira við þá háttsemi sem þeim var gefin að sök. Hann játaði að hafa verið með fíkniefni í fórum sínum í bíl í sölu- og dreifingarskyni. Efnin hafi átt að duga til sölu einnar viku en hann hefði verið tiltölulega nýbyrjaður í faginu og salan hefði farið hægt af stað hjá honum. Hann hefði annað hvort haft samband við Árna eða Davíð þegar hann vantaði efni til að selja og þeir hefðu undirbúið efnin til sölu í litlum pakkningum, eitt til fimm grömm að þyngd. Hann hefði fengið greitt frá Davíð í hverri viku og fengið um það bil hundrað þúsund krónur í hvert skipti. Þá sagði hann að hann teldi að Davíð væri stjórnandi hópsins.
Fíkniefnabrot Dómsmál Smygl Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna Erlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Fleiri fréttir Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Sjá meira