Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Samúel Karl Ólason skrifar 11. maí 2026 16:49 Lögregluþjónar að störfum í Frakklandi. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty/Artur Widak, NurPhoto Minnst tveir eru látnir og sex særðir eftir að maður hóf skothríð úr Kalashnikov-riffli í Nice í Frakklandi í dag. Árásin er talin tengjast uppgjöri í undirheimum borgarinnar og innflutningi fíkniefna en nokkrar skotárásir hafa verið gerðar í borginni á undanförnum dögum.
Áður hafði einn látið lífið. Éric Ciotti, borgarstjóri Nice, skrifaði um árásina á samfélagsmiðla í dag þar sem hann sagði að Frakkland gæti ekki tapað stríðinu við glæpasamtök sem flytja fíkniefni þangað og kallaði eftir aðgerðum. Samkvæmt frétt Le Parisien var árásarmanninum keyrt á vettvang en hann nálgaðist skotmörk sín þó á rafmagnshlaupahjóli, hóf skothríðina og fór svo á brott á hlaupahjólinu. Ökumaður bílsins tók hann þó fljótt upp í. Hinir látnu eru sagðir hafa verið 23 ára og 57 ára. Laurent Hottiaux, ríkisstjóri Alpes-Maritimes í suðurhluta Frakklands, sagði frá því í gær að hann hefði óskað eftir liðsauka fyrir lögregluna í Nice. Það væri liður í því að tryggja öryggi aftur í borginni. Auk árása undanfarinnar daga hafa margar skotárásir og annarskonar árásir verið gerðar í Moulins-hverfi Nice, þar sem árásin var gerð í dag, á undanförnum árum. Í október skutu menn úr bíl og að virðist af handahófi á fólk á opnu torgi. Þá dóu tveir menn sem ekki er talið að tengist fíkniefnasmygli á nokkurn hátt. Í júlí 2024 dóu sjö miðlimir einnar fjölskyldu, þar á meðal þrjú börn og táningur, þegar kveikt var í annarri íbúð í fjölbýlishúsi sem þau bjuggu í.
Frakkland Erlend sakamál Mest lesið „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Innlent Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Innlent Sólin gæti litið við í borginni um helgina Veður „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Erlent Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Erlent Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út Innlent Fleiri fréttir Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Sjá meira