„Við þurfum að gera betur á öllum vígstöðvum“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 12. maí 2026 12:45 Anton Rúnarsson er búinn að brýna varnarleikinn fyrir leik kvöldsins. Pawel Cieslikiewicz Anton Rúnarsson, þjálfari Vals, segir liðið þurfa að þétta raðirnar varnarlega til að vinna ÍBV og verða Íslandsmeistari í kvöld. Valskonur stefna á að svara fyrir slæman skell í síðasta leik.
Valur sigldi til Vestmannaeyja frá Þorlákshöfn með Herjólfi í gærkvöld og mætir ÍBV í fjórða leik úrslitaeinvígis Olís deildar kvenna í handbolta í kvöld. Anton segir ferðalagið langa hafa lagst vel í hópinn. „Fyrst fundur og æfing, svo rúta og bátur. Þetta gekk bara mjög vel,“ sagði Anton. Siglt hefur verið frá Landeyjahöfn nýlega en aðstæður leyfa það ekki þessa dagana og því var siglt frá Þorlákshöfn. Valur hefði getað tryggt Íslandsmeistaratitilinn með sigri í síðasta leik.Karlalið Vals varð Íslandsmeistari tveimur dögum áður og búist var við því að kvennaliðið myndi klára einvígið með tilheyrandi hátíðarhöldum á Hlíðarenda. Niðurstaðan varð hins vegar sannfærandi sjö marka tap. Hvernig ætla Valskonur að svara? „Við höfum nýtt síðustu daga í að fara yfir okkar leik og það er klárt mál að við þurfum að gera betur á öllum vígstöðvum. Mér fannst við ólíkar sjálfum okkur varnarlega og við náðum ekki upp okkar besta leik. Í svona úrslitakeppni verðurðu að vera hundrað prósent í öllum þáttum leiksins til að vinna en það vantaði klárlega upp á varnarleikinn.“ Sókn ÍBV, með Söndru Erlingsdóttur fremsta í flokki, virtist óstöðvandi í síðasta leik og Valskonur áttu sannarlega ekki svörin. Hvernig ætlar Valur að loka betur á ÍBV í kvöld? „Það er bara gamla góða klisjan, við þurfum að þétta raðirnar betur. Við höfum farið yfir okkar leik og höfum verið að spila hörku varnarleik í allan vetur, þetta var ólíkt okkur í síðasta leik. Við vorum of slitnar og þurfum að þétta.“ Í síðasta leik liðanna í Vestmannaeyjum varð Hafdís Renötudóttir, markmaður Vals, fyrir fordómum vegna kynhneigðar hennar. Stuðningsmaðurinn sem beindi köllum sínum að Hafdísi hefur verið dæmdur í bann frá leikjum og ÍBV fékk sekt vegna málsins. „Ég ætla ekki að tjá mig um það. Ég ætla bara að ræða leikinn og einbeita mér að því. Við erum með fókusinn á leiknum og við þurfum að spila betur. Það er mikil tilhlökkun í hópnum að spila í kvöld,“ sagði Anton.
Olís-deild kvenna ÍBV Valur Mest lesið Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Íslenski boltinn UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Fótbolti Bauluðu á verðandi US Open meistara Golf Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Körfubolti Einum mánuði yngri en Eiður Smári Íslenski boltinn Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Enski boltinn Ein vinsælasta golf YouTube-stjarna heims í Vestmannaeyjum Golf Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Fótbolti Karlar sem skulda meðlag í Argentínu mega ekki horfa á Messi á HM Fótbolti Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Enski boltinn Fleiri fréttir Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Sjá meira