Úr Símanum í rörin Samúel Karl Ólason skrifar 12. maí 2026 13:16 Orri Hauksson var forstjóri Símans. Hann og Gunnar Fjalar Helgason hafa nú keypt fjölskyldufyrirtækið Set ehf. á Selfossi. Aðsend og Vísir/Arnar Iðnaðarfyrirtækið Set ehf. á Selfossi hefur verið keypt. Fyrirtækið er einnig með starfsemi í Reykjavík, Danmörku og Þýskalandi en þar starfa að jafnaði um hundrað manns. Set veltir ríflega fimm milljörðum á ári.
Kaupendurnir eru þeir Orri Hauksson, verkfræðingur og fyrrverandi forstjóri Símans, og Gunnar Fjalar Helgason, hagfræðingur og fyrrverandi yfirmaður fjárfestinga og stefnumótunar hjá Símanum. Í tilkynningu um kaupin er kaupverðið ekki gefið upp en þar segir Arion banki hafi fjármagnað hluta kaupanna. Seljendur eru sama fjölskyldan og stofnaði félagið á árum áður. Set framleiðir einangruð rör og plaströr fyrir innviðakerfi, eins og hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu. Einar Elíasson stofnaði félagið Steypuiðjuna árið 1968 á Selfossi og setti Set á laggirnar áratug síðar, 1978. Bræðurnir Bergsteinn og Örn Einarssynir stýrðu félaginu lengi vel og aðrir afkomendur stofnandans hafa unnið þar fram á þennan dag. Árangursríkasta rekstrarformið „Við fögnum því að taka við þessu trausta iðnfyrirtæki á Suðurlandi. Fjölskyldufyrirtæki eru algengasta og árangursríkasta rekstrarform fyrirtækja í heiminum,“ segir Orri í áðurnefndri tilkynningu. „Eftir því sem tíminn líður þróast eignarhald slíkra fyrirtækja iðulega og að okkar mati er fyrirtaks tími núna að næstu eigendur taki við Seti. Sem nýir hluthafar berum við mikla virðingu fyrir farsælli sögu félagsins og þeirri gæðaframleiðslu sem fjölskyldan hefur byggt upp með öflugum starfsmönnum og stjórnendum. Við hlökkum til að taka þátt í framþróun félagsins og halda áfram þessu góða starfi til langs tíma. Okkur þykir mikilvægt að halda góðu sambandi við seljendur eftir eigendaskiptin og nýta þeirra uppsöfnuðu þekkingu eins og framast er unnt.“ Set er sérhæft í framleiðslu röra. Orri segir tækifæri Sets á Íslandi vera margvísleg. Fyrirtækið byggi framleiðslu á hreinum endurnýjanlegum orkugjöfum en samkeppnisaðilar ytra reiði sig einatt á jarðefnaeldsneyti og þunglamalegar flutningakeðjur. „Framundan á Íslandi er að byggja upp nýja innviði í veitustarfsemi, orkuöflun og vegagerð, auk þess að uppfæra neðanjarðarhagkerfið, ef svo má kalla, sem víða er komið til ára sinna í okkar góða landi. Þá er matvælaframleiðsla í örum vexti á Íslandi og þarfnast sú starfsemi hágæðainnviða á borð við þá sem Set framleiðir. Íslenskt efnahagslíf er útflutningsdrifið en stór hluti neysluvara okkar og iðnvarnings er innfluttur. Engu að síður er rík þörf fyrir staðbundna þjónustu og öfluga innlenda framleiðslugetu, sér í lagi þegar kemur að lykilinnviðum. Mikilvægi þessarar innlendu viðbragðsgetu sannaðist svo um munaði í nýafstöðnum jarðeldum á Suðurnesjum. Við þær krefjandi aðstæður tókst Seti að afhenda nauðsynlegan lagnabúnað á örskammri stundu til að lágmarka tjón á kerfum - sem öllu skipti fyrir daglegt líf fólks á svæðinu. Félagið er því mikilvægur viðbragðsaðili varðandi öryggi innviða á veitusviði. Starfsemi félagsins einkennist af ríkri gæðavitund og háu tæknistigi, þar sem áhersla á framleiðni og viðbragðsflýti tryggir að fyrirtækið getur mætt krefjandi verkefnum hratt og örugglega. Það er alltaf sumar á Selfossi. Þessi sterka staða og mikilvægi fyrirtækisins fyrir lykilinnviði lands heillaði okkur, nýja eigendur Sets. Sá er andinn sem hvetur okkur til áframhaldandi uppbyggingar á þeim trausta grunni sem fyrir er.“ Jákvætt skref fyrir framtíð félagsins Örn Einarsson, fráfarandi stjórnarformaður Set ehf, segir fjölskylduna ánæða með að kynna nýja eigendur fyrirtækisins. „Saga Einars Elíassonar og fjölskyldu hans er samofin rekstri þessa merkilega félags og við erum stolt af þeim afrakstri og þeim árangri sem náðst hefur í gegnum árin. Á sama tíma vitum við að áfram eru gífurlegir möguleikar til vaxtar og mikil þörf fyrir það mikilvæga starf sem fyrirtækið sinnir. Eftir áratuga uppbyggingu af hálfu Einars og afkomenda hans er komið að því að færa reksturinn yfir á nýjar hendur. Við teljum það jákvætt skref fyrir framtíð félagsins. Nýir eigendur koma með nýja sýn, ný tækifæri og aukinn kraft til áframhaldandi uppbyggingar og þróunar. Við erum þess fullviss að viðskiptavinir munu áfram kunna að meta þá þjónustu, þekkingu og framleiðslu sem Set hefur byggt upp í gegnum tíðina, sem og það öryggi sem felst í því að framleiða mikilvæga innviði fyrir íslenskt samfélag. Þar má nefna lagnakerfi fyrir hitaveitur, vatnsveitur og fráveitur, auk nýrra og ört vaxandi atvinnugreina á borð við fiskeldi sem á síðustu árum hefur orðið mikilvægur þáttur í uppbyggingu atvinnulífs á Íslandi. Við viljum þakka starfsfólki, viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir traustið og samstarfið í gegnum árin og hlökkum til að fylgjast með Set halda áfram að vaxa og dafna á komandi árum.“ Spennandi tímamót Guðbjörg Sæunn Friðriksdóttir, forstjóri Set ehf, segir þetta stór og spennandi tímamót. „...og það gleður mig að við höfum lokið sölu á Set ehf. Nýir eigendur koma inn með nýja sýn og víðtæka reynslu sem mun styrkja áframhaldandi vöxt á þeim trausta grunni sem Set býr yfir. Starfsfólkið okkar hefur staðið sig stórkostlega í gegnum þetta ferli og sýnt ótrúlega þrautseigju, það er ekki sjálfgefið og vil ég þakka þeim heilshugar. Starfsfólkið er hjartað í fyrirtækinu og slær taktinn alla daga.“
Árborg Kaup og sala fyrirtækja Byggingariðnaður Mest lesið Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Sýn sakar Rúv um að mata ráðuneytið á röngum tölum Viðskipti Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta Samstarf Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Viðskipti innlent Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Sjá meira