Nýtum kosningaréttinn Sigurður Kári Harðarson og Sólveig Jóhannesdóttir Larsen skrifa 13. maí 2026 07:32 Kosningaþátttaka ungs fólks á Íslandi hefur farið minnkandi með árunum, þ.m.t. í sveitarstjórnarkosningum. Við unga fólkið í framboði fyrir Samfylkinguna í Kópavogi lítum á þetta sem áhyggjuefni enda eiga sveitarstjórnarkosningar erindi við alla óháð aldri. Að nýta kosningaréttinn snýst um að velja fulltrúa sem maður treystir til að taka réttar ákvarðanir fyrir hönd allra bæjarbúa, þar með talið ungs fólks. Samfylkingin setur málefni ungs fólks í forgang hjá sér því þau málefni skipta sífellt meira máli. Við viljum skapa samfélag þar sem þessi hópur getur vaxið, dafnað og orðið virkur þátttakandi bæjarins til lengri tíma. Samfylkingin mun gera Kópavoginn að enn betri stað fyrir ungt fólk að búa á og hér eru 4 hlutir sem við munum gera til að bæta aðstæður þeirra í Kópavoginum: Í fyrsta lagi munum við bæta samgöngur. Við erum fylgjandi Borgarlínu þar sem hún stóreflir samgöngur allra íbúa höfuðborgarsvæðisins óháð faramáta þeirra. Umferðin á höfuðborgarsvæðinu er orðin of mikil og Borgarlínan er skynsamlegasta lausnin til þess að takast á við umferðarvandann. Við viljum að ungt fólk geti notið betri samgangna og komið sér á milli staða með betri og áreiðanlegri hætti. Í öðru lagi munum við snúa þeirri þróun við sem hefur skapast á húsnæðismarkaði. Við ætlum að bjóða upp á fjölbreytta valkosti í húsnæðismálum og greiða veginn fyrir óhagnaðardrifin leigufélög í Kópavogi. Staða húsnæðismála í Kópavogi sýnir ábyrgðarleysi gagnvart þeim sem þurfa hvað mest á stuðningi að halda; ungu fólki og lágtekjuhópum. Ný greining ASÍ og BSRB afhjúpar að Kópavogsbær er langt eftir á miðað við önnur bæjarfélög þegar kemur að uppbyggingu íbúða í almenna íbúðar kerfisins. Með svokallaðri „0-stefnu“ meirihlutans hefur Bjargi verið neitað um lóðir til uppbyggingar á óhagnaðardrifnu húsnæði og í Kópavoginum er ekki ein einasta námsmannaíbúð. Þegar húsnæðismarkaðurinn er í ójafnvægi á sveitarfélagið að byggja í takt við þarfir allra hópa en ekki skilja ungt fólk og efnaminni íbúa eftir í kuldanum. Í þriðja lagi munum við lengja opnunartíma sundlauga. Hvað er betra en kvöldsund með vinum? Fara í körfu í lauginni og taka eina troðslu? Steikja sig í heita pottinum eða gufu og kæla sig í kalda pottinum? Tala um pólitík við eldri borgara? Rekast á fullt af fólki og vinum sem maður myndi annars ekki hitta? Sundlaugarnar á Íslandi er menningin okkar og styður við félagslíf og lýðheilsu okkar allra. Við viljum nýta þessa dýrmætu auðlind í Kópavoginum betur og hafa sundlaugarnar lengur opnar. Við munum hafa báðar sundlaugar opnar á rauðum dögum og tryggja að þú komist í sundlaug sem er ekki troðin á frídögum. Miðnæturopnanir verða reglulegar og við bætum menningarlífið með viðburðum og skemmtunum í laugunum. Í fjórða lagi munum við stórefla menningar- og félagslíf barna og ungmenna í Kópavogi, með sérstakri áherslu á þau sem stunda ekki hefðbundnar íþróttir. Öflugt félagslíf er lykillinn að bættri geðheilsu og vellíðan. Til þess að hvert og eitt barn fái að blómstra þurfum við að bjóða upp á fjölbreyttari tækifæri í greinum lista, leiklistar og rafíþrótta svo eitthvað sé nefnt. Með því að efla menningarlíf og skapa nýja samkomustaði, til dæmis með því að gera enn betur við ungmennahúsið Molann, getum við spornað gegn félagslegri einangrun og bætt geðheilsu ungs fólks. Við viljum skapa bæjarfélag þar sem öll ungmenni hafa aðgang að hvetjandi og félagslegu andrými sem styrkir félagsleg tengsl og styður við andlega heilsu þeirra til frambúðar. Það skiptir máli hver er við stjórnvölinn og Samfylking í Kópavogi býður upp á nýja forgangsröðun í þágu Kópavogsbúa. Við hvetjum ungt fólk til að kjósa til að hafa áhrif á framtíðina og sitt nærumhverfi. Mætum á kjörstað 16.maí! Á kjördag verður hægt að kjósa frá 9:00-22:00. Íbúar vestan við Reykjanesbraut og í Lindahverfi kjósa í íþróttahúsinu Smáranum, Dalsmára 5. Íbúar Austan við Reykjanesbraut kjósa í íþróttahúsinu Kórnum, Vallakór 12. Hægt er að kjósa utankjörfundar til 15.maí í Hlíðasmára 1, Kópavogi og er opnunartíminn þar 10:0021:00. Höfundar skipa 10. og 11. sæti á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samfylkingin Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Sjá meira
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun