„Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Agnar Már Másson skrifar 13. maí 2026 22:01 Allir réttu upp græna spaðann þegar oddvitar voru spurðir hvort regnbogafáninn ætti heima í skólastofum. Ari var samt hikandi og mótframbjóðendur hans pikkuðu í hann fyrir það. Vísir/Vilhelm Spjótin beindust að Ara Edwald, oddvita Miðflokksins, í oddvitakappræðum Sýnar í kvöld þegar umræðan barst að regnbogafánum í skólastofunni. Ari sagði Miðflokksmenn standa með mannréttindum og benti á að hann ætti sjálfur dóttur og vin sem væru hinsegin.
Allir oddvitar réttu upp „já“-spaðann þegar þeir voru spurðir hvort regnbogafáninn ætti að vera sýnilegur í skólastofum. Ari Edwald var þó hikandi. „Það er þröngt að vera með svona já og nei stundum eins og maður finnur fyrir núna,“ sagði Ari, sem útskýurði svo sitt máli. „Miðflokkurinn stendur með mannréttindum fyrir alla“ Spurður af mótframbjóðendum sínum út í þetta hik sagði hann umræðuna um regnbogafánann sem spunnist hefur síðustu vikur snúast „frekar um tákn heldur en innihald“. Ari sagði að máluð hefði verið upp mynd af Miðflokknum sem ekki væri sönn. Landsbyggðarframboð Miðflokksins fundu sig sum hver knúin til þess að gefa út yfirlýsingar þess efnis að þau fögnuðu fjölbreytileikanum. Gerðist það í kjölfar þess að Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, sagði flöggun regnbogafánans vera kröfu um hugmyndafræðilega undirgefni. „Það er kjarni málsins að Miðflokkurinn stendur með mannréttindum fyrir alla og alla hópa,“ sagði Ari þá og uppskar hlátur úr salnum. Þá sagði hann að sér væru gerðar upp skoðanir gegn hinsegin fólki. „Þá er verið að setja mig í einhvern hóp sem hefur fordóma gagnvart minni eigin dóttur, sem er minn augasteinn og er í hamingjusömu sambandi með annarri konu. Og þær eiga tvo drengi. Annar þeirra heitir nú Ari Edwald.“ Ari segir enn fremur að besti vinur sinn sé samkynhneigður. Þá sagði hann að ef Miðflokkurinn væri með fordóma gagnvart hinsegin fólki þá væri hann ekki í Miðflokknum. Ari Edwald í kvöld.Vísir/Vilhelm Nýi fáninn sé ekki regnbogafáninn „Mér þykir vænt um regnbogafánann,“ sagði Ari meðal annars. „En fáninn sem er nú algengastur er ekki sá fáni.“ Umburðarlyndi þyrfti einnig að þýða umburðarlyndi fyrir annarra manna skoðunum. Þá vildi Silja Sóley, oddviti Sósíalistaflokksins, grípa orðið og benda á að sú viðbót við regnbogafánann sem Ari átti við vísaði til trans fólks auk fólks með alnæmi. Silja sagði Miðflokksmenn gjarnan skýla sér á bak við það – í umræðunni um regnbogafánann – að þeir vilji einfaldlega að íslenska þjóðfánanum sé oftar flaggað og vísar hún þá væntanlega til umfjöllunar á TikTok-síðu Miðflokksins í Kópavogi. „Það er algjörlega hægt að taka þá umræðu án þess að beina spjótum að hinsegin fánanum,“ sagði Silja. „Og þið vitið það,“ bætti hún við. Einar: Miðflokkurinn „í miklum vandræðum“ með hinsegin mál Þá fékk Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, orðið og minnti á að hann hefði einu sinni verið borgarstjóri. „Og þegar maður er borgarstjóri fer maður í skólana, félagsmiðstöðvarnar [...] og þá sér maður börnin og þau eru alls konar. Og þegar kennari er með hálsband í regnbogalitunum er það stundum eina haldreipi lítils barns eða ungmennis sem er að finna sig í lífinu,“ sagði Einar. Innan skólastofunnar fljúgi hommabrandarar og það skipti raunverulegu máli að fáninn sé sýnilegur. „Það skiptir líka raunverulegu máli að þegar þeir sem bjóða sig fram til borgarstjórnar, að þeir mæti ekki bara með þögn þegar samflokksmenn tala ekki af nægilegri virðingu um þessa hópa,“ sagði Einar „Ég ætla ekki að gera þér upp neinar skoðanir, Ari, en flokkurinn sem þú ert í er í miklum vandræðum með þessi mál.“ Ari nefndi að borgarfulltrúar verði að haga orðum sínum þannig að þau særi engan. „Og það á við um þennan hóp og á við um aðra,“ sagði Ari og sagði að skólar hefðu náð miklum árangri í að uppræta einelti og kenna börnum að sýna hvert öðru virðingu. Kristinn Jón Ólafsson, oddviti Pírata, tók þá fram að það væri mikilvægt að skólar séu hinseginvænir. „Það eru ótrúlegar hræringar erlendis og líka hér, sem við þurfum að standa vörð um, og það er fasismi sem er ríkjandi í þokkabót,“ sagði Kristinn, sem bætti við að sér þætti vænt um að sjá að allir hefðu lyft upp grænum spaða í þessari umræðu. „Það er gelt á þau“ Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, tók fram að í samtölum sínum við ungmenni í Reykjavík hefði komið fram að hinsegin fólk væri verulega jaðarsett. „Það er gelt á þau,“ sagði Björg og sneri sér að Ara: „Það er staðan.“ Það skipti miklu máli að standa vörð um hinsegin fólk. „Það eru krakkar þarna úti sem eru jaðarsettir. Og það eru flokkar sem eru að sparka í þau, hnýta í þau og svo framvegis. Mér finnst það rangt. Við verðum að standa með þessu fólki og standa með mannréttindum,“ sagði Björg. Ari vildi þá árétta: „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka.“ Vísir/Vilhelm Hinsegin börn eigi heima í þessari borg eins og allir aðrir Sanna Magdalena, oddviti Vinstrisins, sagði að standa þyrfti saman. Reykjavíkurborg ætti að vera mannréttindaborg. „Íbúar borgarinnar eru alls konar,“ sagði Sanna. „Og það gengur ekki að það sé verið að splitta okkur upp í hópa og við séum ekki sameinuð. Því að þannig náum við sem mestum og bestum árangri.“ Hildur Björnsdóttir úr Sjálfstæðisflokki sagði umræðuna um regnbogafána vonbrigði. Það væri sjálfsagt að regnbogafáninn fengi að vera inni í skólastofum þar sem mörg börn stæðu höllum fæti. „Við eigum bara að standa með þeim og styðja við þau og láta þau finna að þau séu velkomin og eigi heima í þessari borg eins og allir aðrir.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borgarstjórn Reykjavík Hinsegin Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Innlent Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Sjá meira