„Eins og súpa sem vantar salt og pipar“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 13. maí 2026 23:57 Óskar Hrafn segir að KR-ingar geti enn treyst á að skora 3-5 mörk í leik. Vísir/Ernir Eyjólfsson „Mér fannst þetta bara sanngjarn sigur Stjörnunnar,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, eftir að liðið féll úr leik í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld.
Óskar og lærisveinar hans máttu þola 2-1 tap í Garðabænum í kvöld og því er strax orðið ljóst að topplið Bestu-deildarinnar á ekki möguleika á því að verða bikarmeistari. „Ég er ekkert viss um að þeir hafi verið betri en við, en þeir áttu sigurinn skilið. Heilt yfir lögðu þeir sig meira fram og þegar við gerðum atlögu að þeim síðasta hálftíman eða svo þá var ekki nógu mikil sannfæring í því,“ bætti Óskar við. „Við bönkuðum ekki nógu fast á hurðina til að ná að opna og vorum fannst mér ekkert sérstaklega líklegir til að ná að opna hana. Við hefðum mögulega átt að fá víti í seinni hálfleik og brennum af víti í fyrri hálfleik, en það hefði ekki verið sanngjarnt ef við hefðum farið 2-2 inn í hálfleikinn. Við verðum bara að vera heiðarlegir með það. Það vantaði orku, það vantaði hugarfar og drifkraft á stórum köflum í leiknum. Þá er KR-liðið ekki að fara að gera mikið þegar þetta vantar.“ En af hverju ná KR-ingar ekki að sprengja upp vörn Stjörnunnar, eins og þeir hafa gert gegn sex mismunandi liðum í Bestu-deildinni í sumar? „Það vantaði bara orku, eitthvað hungur og einhvern drifkraft. Þegar þú ætlar að brjóta á bak aftur lið sem eru farin að falla niður, og ég tala nú ekki um lið eins og Stjörnuna sem er mjög vel mannað og öflugt lið, þá þarf að vera kveikt á þér. Þegar það er ekki hundrað prósent þá erum við ekki að fara að búa okkur til nógu margar stöður til að eiga möguleika á að brjóta Stjörnuna á bak aftur. Þannig lítur þetta bara út fyrir mér,“ sagði Óskar. „Við erum búnir að vera mjög fínir í mörgum leikjum og að stærstum hluta erum við búnir að vera góðir það sem af er sumri. Þetta var sennilega næstlakasti leikurinn okkar í sumar. Við vinnum ekki leiki á móti Stjörnunni ef við spilum ekki nálægt okkar besta. Það er bara eins og það er. Það er allt í lagi að vera heiðarlegur með það,“ bætti Óskar við, og hélt áfram. „Við erum ekki lið sem er búið að vera í toppbaráttunni í tíu ár eða með þrjúhundruð leiki á bakinu. Við erum enn að læra og þurfum að læra hratt. Miðað við þann stað sem við erum á í deildinni í dag þá þurfum við að læra býsna hratt með stjörnum prýtt lið Víkinga andandi í hálsmálið á okkur. Það er bara verkefnið. Við þurfum að sýna meiri stöðugleika og passa upp á að orkan, hungrið og drifkrafturinn sé til staðar vegna þess að þegar það er til staðar þá kemur allt hitt á eftir. Ef það vantar eitthvað af þessu þá er þetta bara eins og súpa sem vantar salt og pipar. Þá er ekkert. Bara bragðlaust.“ Geta enn treyst á að skora meira en hinir Þrátt fyrir að tróna á toppi Bestu-deildarinnar með fullt hús stiga hafa KR-ingar ekki enn náð að halda hreinu á tímabilinu. Óskar telur það þó ekki vera vandamál sem þarf að leysa strax. „Ég er alveg algjörlega ósammála þér. Það er alveg hægt að treysta á að við skorum 3-5 mörk í hverjum einasta leik. Ég hef fullan skilning á að þú skulir nefna þetta, en þetta pirrar mig ekki neitt,“ sagði Óskar. „Við stöndum hátt með liðið og tökum áhættur. Það hefur það í för með sér að við getum opnast og á móti góðum liðum geta þau auðveldlega skorað hjá okkur. En við þurfum bara að svara mörkunum sem við fáum á okkur með fleiri mörkum á móti. Auðvitað er draumurinn að við séum enn betri og gefum færri færi á okkur. Það er eitt af markmiðunum, en við erum ekki komnir þangað núna. Á meðan við erum að fá á okkur mörk, þá verðum við einfaldlega að skora fleiri. Ef við ætlum að skora mörk þá verður allt þetta sem ég nefndi áðan að vera til staðar. Það er til mikils ætlast,“ bætti Óskar við og hafði ekki lokið sér af. „Margin of error, eða hvað sem þú kallar það, rými tíl mistaka, því KR er lítið. Við erum sennilega aldrei að fara að hjakka okkur í gegnum einhverja leiki bara á reynslunni og seiglunni og einhverju svona. Ef við ætlum að vinna leiki þurfum við bara að vera góðir. Punktur,“ sagði Óskar að lokum.
Mjólkurbikar karla Stjarnan KR Mest lesið Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Fótbolti Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Íslenski boltinn Íþróttamanni ársins leið ekki eins og íþróttamanni Sport Fimmtán ára með besta hring dagsins á Íslandsmótinu Golf Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Fótbolti Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Fótbolti Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Enski boltinn Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Enski boltinn Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Handbolti Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Fótbolti Fleiri fréttir Jorge Messi látinn Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Ensk landsliðskona vill sniðganga HM Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Afturelding á toppinn eftir stórsigur og tap Fylkis Uppgjörið: Valur-Víkingur 1-0 | Fyrsti sigur Vals síðan 25. maí „Var bara eitthvað með hann ógeðslega lengi og svo bara skoraði ég“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-ÍBV 4-2 | Draumahálfleikur Emmu kláraði ÍBV Uppgjörið: Þór/KA-Fram 2-0 | Ungi miðvörðurinn hetja norðankvenna Víkingar kaupa Hrannar Snæ frá Noregi Gunnar Orri Olsen um frumraun sína með FCK: „Þetta er stórt!“ Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Deilur Spánar og Marokkó setja undirbúning Barcelona úr skorðum Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Yngsti landsliðsmaður í sögu Argentínu orðinn liðsfélagi Alberts Valur í brekku: „Ýtum öllu sem er í gangi til hliðar“ Kallar eftir afsögn Infantino og skaut á Blatter Lukaku leitar sér að nýju liði Mexíkó og Argentína styðja Infantino Bjarki söðlar um á Ítalíu og syngur lagið hans Orra Gísli Gotti til Þýskalands Agla María skaut Breiðablik í forkeppni Evrópubikarsins Toney ákærður fyrir líkamsárás á skemmtistað Sjá meira