„Ég tek fulla ábyrgð“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. maí 2026 17:35 Jóhannes Karl Guðjónsson axlar ábyrgð á tapinu. Vísir / Hulda Margrét Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var afar ósáttur eftir 5-0 tap liðsins gegn Fylki í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í Árbænum í dag.
FH fékk á sig mark strax á sjöttu mínútu og var komið 3-0 undir eftir 23 mínútur. Jóhannes sagði byrjunina hafa reynst liðinu afar dýrkeypta. „Það er náttúrulega eitt að vera úr bikarnum, sem er virkilega svekkjandi, en ég er virkilega ósáttur með hvernig við byrjum þennan leik að einhverju leyti,“ sagði Jóhannes Karl eftir leik. „Fyrsta markið slær okkur svolítið út af laginu. Fylkismenn mættu mjög grimmir inn í leikinn og settu okkur í krefjandi stöðu.“ Of passífir í upphafi Jóhannes sagði FH hafa verið of passíft í upphafi leiks og ekki tekist að koma í veg fyrir að Fylkir kæmist í hættulegar stöður úti á köntunum. „Við þurftum að verjast svolítið inni á síðasta þriðjungi og vorum svolítið passífir. Við vissum að þeir myndu fara hátt á okkur með bakverðina og reyna að komast í yfirtölu út af köntunum,“ sagði Jóhannes. „Þeir voru með tvo sterka framherja og myndu koma mikið af boltum inn í teiginn. Við hefðum átt að vera aggressífari og reyna að stoppa þá miklu fyrr í þeirra nálgun.“ Fylkir gekk á lagið Fylkir nýtti sér stöðuna vel og var komið í 3-0 áður en fyrri hálfleikur var hálfnaður. Jóhannes sagði heimamenn hafa gengið frá leiknum snemma. „Þeir gerðu þetta virkilega vel, fá fyrsta markið og þvílíkan meðbyr með sér. Svo ganga þeir eiginlega bara frá okkur þarna í fyrri hálfleik og eru komnir í 3-0. Við sáum bara varla til sólar eftir það.“ Hann sagði margt hafa farið úrskeiðis hjá FH, ekki síst þegar liðið reyndi að halda boltanum. „Það var mikið um sendingafeila hjá okkur. Við ætluðum að reyna að halda miklu betur í boltann en það gekk ekki upp. Það gekk eiginlega ekkert upp hjá okkur í dag.“ Axlar sjálfur ábyrgð Jóhannes tók ábyrgð á frammistöðunni og sagði leikplanið ekki hafa gengið upp. „Ég tek fulla ábyrgð á því. Það er í mínum höndum að setja upp leikplanið fyrir þennan leik og ég held að það hafi klárlega sést að það gekk ekki upp. Það er á mína ábyrgð,“ sagði Jóhannes. FH er úr leik í bikarnum en liðið þarf fljótt að snúa sér að næsta verkefni í deildinni. „Það er ansi margt sem við getum lært af þessum leik því það var ekki mikið sem við gerðum vel. Á sama tíma þurfum við náttúrulega líka að ýta þessum leik til hliðar,“ sagði Jóhannes. „Við erum út úr bikarnum en það er erfiður leikur heima á móti KA á sunnudaginn. Við þurfum að vera ansi fljótir að skipta um ham og fara að undirbúa okkur fyrir deildina.“
Mjólkurbikar karla Fylkir FH Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira