Arndís Anna til Bifrastar Árni Sæberg skrifar 15. maí 2026 10:33 Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir var áður þingmaður Pírata en gaf ekki kost á sér í alþingiskosningum 2024. Vísir/Vilhelm Háskólinn á Bifröst hefur ráðið Arndísi Önnu K. Gunnarsdóttur, fyrrverandi alþingismann, til starfa sem lektor við lagadeild háskólans.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Arndís Anna búi yfir áralangri reynslu af kennslu og rannsóknum á sviði lögfræði, einkum í tengslum við mannréttindi, fólksflutninga og ýmis samskipti borgara og ríkisvalds. Hún hafi starfað við og rannsakað þessi málefni á Íslandi, í Belgíu og í Frakklandi. Hún hafi víðtæka starfsreynslu úr stjórnsýslu, lögmennsku og akademíu, hún hafi starfað sem lögfræðingur hjá Rauða krossinum á Íslandi, hjá ráðuneytum og stofnunum og sem sjálfstætt starfandi lögmaður. Auk þess hafi hún setið á Alþingi á árunum 2021 til 2024. Arndís Anna hafi lokið meistaranámi í lögfræði frá Háskóla Íslands, LL.M. gráðu í mannréttindum og þjóðarétti frá KU Leuven í Belgíu og stundað doktorsnám í mannréttindum við Háskólann í Strassborg á árunum 2017 til 2020. Í frítíma sínum sinni Arndís fjölbreyttum áhugamálum, meðal annars ýmsum félagsstörfum, auk þess að syngja í kór Hallgrímskirkju. „Það er mikill fengur fyrir Háskólann á Bifröst að fá Arndísi Önnu til liðs við sig. Þekking og reynsla hennar á sviði lögfræði og mannréttinda mun án efa verða mikill styrkur fyrir lagadeildina og skólann í heild“ er haft eftir Hauki Loga Karlssyni deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst.
Vistaskipti Alþingi Háskólar Píratar Skóla- og menntamál Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ Sjá meira