Sigfríð Ingólfsdóttir er látin Magnús Jochum Pálsson skrifar 15. maí 2026 14:09 Sigfríð Ingólfsdóttir, sem var landsfræg sem stuðningsmaður Arsenal, er látin. Sýn Sigfríð Ingólfsdóttir, fyrrverandi fiskverkakona á Akureyri og einn þekktasti Arsenal-stuðningsmaður landsins, er látin, 73 ára að aldri. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu, Aðalstræti 5, laugardaginn 9. maí.
Bæjarmiðillinn Akureyri.net greindi frá andláti Sigfríðar. Sigfríð fæddist 7. júní árið 1952 á Akureyri. Foreldrar hennar voru Unnur Kristjana Sigtryggsdóttir og Ingólfur Árni Guðmundsson. Sambýlismaður Sigfríðar var Bjarni Hólm Valgeirsson sem lést árið 2021. Sigfríð lætur eftir sig fjögur börn, Unni A. Bernharðsdóttur, Láru Baldursdóttur, Kristján Atlason og Arnar Hólm Bjarnason. Sigfríð var landsfræg sem stuðningsmaður enska knattspyrnufélagsins Arsenal. Heimili hennar við Aðalstræti 5 var gjarnan kallað Arsenal-húsið enda blakti bæði fáni félagsins við húsið og sérstakt Arsenal-herbergi í húsinu með ógrynni minjagripa tengt klúbbnum. Sigfríð skírði jafnframt kött sinn í höfuði á franska knattspyrnustjóranum Arsene Wenger og var hún gerð að heiðursfélaga í Arsenal-klúbbnum á Íslandi. Þá var hún einnig mikill stuðningsmaður Knattspyrnufélags Akureyrar og tíður gestur á leikjum félagsins. Arnar Björnsson, fréttamaður Stöðvar 2, heimsótti Sigfríði og Bjarna árið 2017 og gerði innslag fyrir kvöldfréttir um Arsenal-heimilið. Ólíkt Sigfríði hélt Bjarni með Lundúnaklúbbinum West Ham en það var ekki að sjá á heimilinu enda réði Sigfríð ferðinni þegar kom að skreytingunum. Sigfríð setti íbúð sína í bláa húsinu við Aðalstræti á sölu árið 2024 en seldi hana ekki.
Andlát Akureyri Arsenal FC Tengdar fréttir Harðasta Arsenal-kona landsins skýrði köttinn sinn Wenger | Myndband Í Aðalstræti 5 á Akureyri búa Sigfríð Ingólfsdóttir og Bjarni Valgeirsson. Þau eru mikið áhugafólk um enska boltann. Sigfríð heldur með Arsenal en Bjarni með West Ham. 11. júlí 2017 19:15 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Fleiri fréttir Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Sjá meira
Harðasta Arsenal-kona landsins skýrði köttinn sinn Wenger | Myndband Í Aðalstræti 5 á Akureyri búa Sigfríð Ingólfsdóttir og Bjarni Valgeirsson. Þau eru mikið áhugafólk um enska boltann. Sigfríð heldur með Arsenal en Bjarni með West Ham. 11. júlí 2017 19:15