Sjáðu hælspyrnuna sem særði City, Dana klára United og þrennu Joao Pedro Arsenal er komið með sjö stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir hagstæð úrslit í leikjum gærkvöldsins en nú má horfa á mörkin úr leikjunum hér inni á Vísi. Enski boltinn 5.3.2026 08:17
Skytturnar styrktu stöðu sína á toppnum Arsenal sótti gríðarmikilvægan 0-1 sigur gegn Brighton. Toppliðið tók sjö stiga forystu á Manchester City með þessum sigri, þökk sé marki Bukayo Saka. Enski boltinn 4.3.2026 19:03
Toppbaráttan: Árlegi City-skriðþunginn og brúðarmærin sem vill verða brúður Baráttan um Englandsmeistaratitilinn nær brátt hámarki. Þegar aðeins tíu umferðir eru eftir af ensku úrvalsdeildinni berjast Arsenal og Manchester City um titilinn. Skytturnar hafa verið á toppi ensku úrvalsdeildarinnar nær allt tímabilið og eru í leit að sínum fyrsta Englandsmeistaratitli í rúmlega tuttugu ár á meðan City-menn freista þess að verða meistarar í sjöunda sinn á síðustu tíu árum. Enski boltinn 4.3.2026 09:01
Stórlið mætast í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu Dregið var í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu við hátíðlega athöfn í Sviss í dag. Manchester City mætir Real Madrid í stórleik umferðarinnar og Chelsea mætir Evrópumeisturum PSG. Arsenal og Liverpool gætu hugsað sér gott til glóðarinnar. Fótbolti 27. febrúar 2026 11:23
Þakkar opinskáum liðsfundi fyrir frammistöðu Arsenal á móti Tottenham Sænski framherjinn Viktor Gyökeres telur að afgerandi sigur Arsenal í grannaslagnum gegn Tottenham hafi verið „fullkomið svar“ til að þagga niður í gagnrýnendum félagsins. Enski boltinn 23. febrúar 2026 20:02
„Sammála að þetta sé dýfa en þú þarft að gera þetta“ Leikmenn og stuðningsmenn Tottenham upplifðu sig svikna þegar mark var tekið af Randall Kolo Muani í leiknum gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Enski boltinn 23. febrúar 2026 13:45
Arteta klár í baráttuna: „Tíu leikir í ensku úrvalsdeildinni eru maraþon“ Eins og við mátti búast lá vel á Mikel Arteta, knattspyrnustjóra Arsenal, eftir 1-4 sigurinn á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann sagði sína menn hafa svarað jafnteflinu við Wolves vel og hrósaði markaskorurunum Eberechi Eze og Viktor Gyökeres í hástert. Enski boltinn 22. febrúar 2026 20:43
Eze aftur í aðalhlutverki gegn Tottenham og Arsenal með fimm stiga forskot Arsenal endurheimti fimm stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 1-4 sigri á Tottenham í Norður-Lundúnaslagnum í dag. Eins og í fyrri deildarleik liðanna á tímabilinu var Eberechi Eze í stóru hlutverki. Enski boltinn 22. febrúar 2026 18:35
Sjáðu Arsenal renna á rassinn gegn Úlfunum Topplið ensku úrvalsdeildarinnar missteig sig harkalega í gærkvöldi eftir að hafa náð tveggja marka forystu á útivelli. Mörkin úr leik Wolves og Arsenal má sjá hér fyrir neðan. Enski boltinn 19. febrúar 2026 08:27
„Mjög erfitt að sætta sig við þetta“ Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, sá sína menn missa frá sér tvö stig í öðrum leiknum í röð og gefa Manchester City tækifæri á að minnka forskot þeirra enn frekar á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 18. febrúar 2026 22:55
„Okkur var refsað fyrir það“ Bukayo Saka var niðurlútur og vonbrigðin uppmáluð þegar hann mætti í viðtal eftir 2-2 jafntefli Arsenal á móti botnliði Úlfanna í kvöld. Enski boltinn 18. febrúar 2026 22:46
Arsenal missti niður tveggja marka forskot í jafntefli við botnliðið Arsenal mistókst að ná sjö stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld eftir 2-2 jafntefli á móti neðsta liði deildarinnar. Enski boltinn 18. febrúar 2026 22:04
Saka verður sá launahæsti Bukayo Saka hefur framlengt samning sinn við Arsenal, topplið ensku úrvalsdeildarinnar, og verður launahæsti leikmaður félagsins. Enski boltinn 17. febrúar 2026 20:33
Mikel Arteta óttast að tímabil Arsenal stefni í kunnuglega átt Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur viðurkennt að hann óttist að meiðsli gætu enn og aftur komið í veg fyrir að lið hans nái loksins að vinna ensku úrvalsdeildina. Enski boltinn 17. febrúar 2026 13:33
Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Arsenal á enn möguleika á að landa fjórum titlum fyrir sumarfrí eftir frábæran 4-0 sigur gegn C-deildarliði Wigan í dag, í ensku bikarkeppninni í fótbolta. Enski boltinn 15. febrúar 2026 16:01
„Hann er skíthræddur“ Albert Brynjar Ingason gagnrýndi sína menn í Arsenal harðlega í Messunni á Sýn Sport, eftir 1-1 jafntefli toppliðsins við Brentford. Enski boltinn 13. febrúar 2026 13:30
Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Brentford tók á móti toppliði Arsenal og gerði 1-1 jafntefli eftir að hafa lent undir. Noni Madueke skoraði skallamark fyrir Arsenal en Keane Lewis-Potter svaraði með skallamarki fyrir Brentford. Enski boltinn 12. febrúar 2026 22:00
„Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Bernardo Silva, leikmaður Manchester City, skoraði mikilvægt jöfnunarmark í endurkomusigrinum á Liverpool á Anfield í kvöld. Enski boltinn 8. febrúar 2026 18:59
Sjáðu fjórða sigur United, þrennu Palmer og tvennu Gyökeres Mörkin úr stórleikjum gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni má sjá hér fyrir neðan. Manchester United fagnaði fjórða sigrinum í röð, Cole Palmer skoraði þrennu í fyrri hálfleik fyrir Chelsea og Viktor Gyökeres kom boltanum tvívegis í netið fyrir Arsenal. Enski boltinn 8. febrúar 2026 13:18
Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, hélt því fram eftir sigur sinna manna í dag að níu stiga forysta Arsenal á toppi ensku úrvalsdeildarinnar þýði „ekkert“ þrátt fyrir að lið hans hafi aukið pressuna á Manchester City. Enski boltinn 7. febrúar 2026 19:14
Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Arsenal bætti stöðu sína enn frekar á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-0 sigur á Sunderland í dag. Enski boltinn 7. febrúar 2026 16:57
Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Mikel Arteta, stjóri Arsenal, verður áfram án lykilmanna í leiknum við Sunderland á morgun. Þetta staðfesti hann á blaðamannafundi og svaraði ásökunum um virðingarleysi í garð Chelsea. Enski boltinn 6. febrúar 2026 15:31
Sakar Arsenal um virðingarleysi Liam Rosenior, aðalþjálfari Chelsea, viðurkenndi að hann hefði misst stjórn á skapi sínu gagnvart leikmönnum Arsenal vegna þess sem hann telur vera virðingarleysi gagnvart liði sínu fyrir seinni undanúrslitaleikinn í Carabao-bikarnum á þriðjudag. Enski boltinn 6. febrúar 2026 11:02
Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik enska deildarbikarsins í fótbolta. Þetta varð ljóst eftir að City valtaði yfir Newcastle United í einvígi liðanna í undanúrslitum samanlagt 5-1. Enski boltinn 4. febrúar 2026 21:54