Tók debetkort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmri milljón Freyja Þórisdóttir skrifar 15. maí 2026 20:52 Barmahlíð er hjúkrunar- og dvalarheimili á Vestfjörðum. Vísir/Vilhelm Starfsmaður á hjúkrunarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum hefur verið dæmd fyrir að hafa tekið debetkort af vistmanni og greitt fyrir vörur og þjónustu að andvirði ríflega 1,2 milljóna íslenskra króna. Þannig er henni gert að hafa misnotað stöðu sína en vistmaðurinn er í dómnum sagður vera með vitræna skerðingu, vangetu til þess að átta sig á fjármálum og háður hinni ákærðu um þjónustu.
Málið var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Vestfjörðum í febrúar síðastliðnum en konan starfaði sem ummönnunaraðili á hjúkrunar- og dvalarheimilinu. Hefur hún játað að hafa þegið debetkortið og notað það í eigin þágu fjörutíu og átta sinnum. Tók hún meðal annars út pening í hraðbanka, keypti sér pítsu, fór í sund og verslaði í húsgagnavöruversluninni IKEA. Alls var rúm milljón og tvö hundruð þúsund tekin af bankareikningi mannsins en svo virðist sem konan hafi tekið kortið með sér erlendis. Var stærsta eingreiðslan af kortinu stíluð á sólgleraugnaverslun í Portúgal, en hún hljóðaði upp á ríflega hundrað og sextíu þúsund krónur. Nýtti sér aðstöðu sína á kostnað mannsins Vistmaðurinn hefur verið sviptur fjárræði en lögmaður hans fer fram á að konunni verði gert að greiða brotaþola skaðabætur að fjárhæð 1.199.766 krónur auk vaxta. Einnig er farið fram á að sú ákærða greiði málskostnað brotaþola. Líkt og fyrr segir hefur konan játað brot sitt skýlaust og er í dómnum greint frá því að brotið sé tvíhliða þar sem „ákærða hafi einhliða misnotað sér aðstöðu sína og trúnað til þess að afla sér fjárvinnings á kostnað brotaþola“. Með tilliti til játningar ákærðu og viðurkenningar á bótaskyldu gagnvart brotaþola hefur konan verið dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og henni gert að greiða brotaþola rétt tæpa eina og hálfa milljón sem og þóknun skipaðs verjanda síns sem er um tvö hundruð og fimmtíu þúsund krónur.
Lögreglumál Dómsmál Reykhólahreppur Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira