Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum Sindri Sverrisson skrifar 15. maí 2026 22:04 Ragnar Ágústsson skartaði veglegri rispu í sjónvarpssettinu eftir leik í kvöld. Sýn Sport Ragnar Ágústsson var að sjálfsögðu valinn Just Wingin' it maður leiksins eftir magnaða frammistöðu sína með Tindastóli gegn Grindavík í kvöld, þegar Stólarnir héldu sér á lífi í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn með 94-89 sigri.
Ragnar mætti vel rispaður í settið hjá Körfuboltakvöldi eftir sigurinn, eftir átökin við Grindvíkinga sem Ragnar segir að mættu klippa betur neglurnar sínar. „Ég þarf eiginlega að fá dómarana til að kíkja á liðið og fá naglasnyrtingu fyrir strákana þarna hinu megin. Þeir eru allir oddhvassir þarna og ég er með nokkrar rispur,“ sagði Ragnar léttur og spurning hvort brugðist verði við þessu fyrir fjórða leik í Síkinu á Sauðárkróki á mánudaginn. Viðtalið við Ragnar má sjá hér að neðan. Klippa: Ragnar maður leiksins í Grindavík Talið barst aftur að rispum, þó annars konar, þegar Teitur Örlygsson sagði ljóst að Stólarnir hefðu spilað af meira hugrekki í kvöld og ekki látið það trufla sig þó stjörnur Grindavíkurliðsins settu í fimmta gír á köflum. „Við vitum alveg að það koma rispur. Við verðum bara að taka þeim og reyna að minnka þessar rispur eins og við getum, og ná að snúa þessu aftur okkar megin,“ sagði Ragnar. Ragnar var með 27 framlagspunkta á aðeins 20 mínútum sem hann spilaði í kvöld, eftir að hafa tekið heil 13 fráköst og skorað 10 stig. „Við verðum að ráðast á boltann, sérstaklega sóknarmegin, því við getum fengið auðveldar körfur þegar við náum boltanum. Það er svo mikilvægt í þessari seríu að fá auðveldar körfur,“ sagði Ragnar sem var svo spurður hvort hann væri ekki þreyttur eftir alla orkuna sem hann lagði í leikinn: „Ég nýti bara hverja einustu mínútu. Við erum með það góðan hóp að hver og einn einstaklingur getur sett sig hundrað prósent í leikinn þegar hann er inná. Ég bara læt vaða og geri allt hundrað prósent, og svo kemur bara skipting.“ Grindavík er enn yfir í einvíginu, 2-1, en fjórði leikur verður á Sauðárkróki á mánudaginn. Vinni Tindastóll þann leik mætast liðin í oddaleik í Grindavík næsta fimmtudagskvöld.
Bónus-deild karla Tindastóll UMF Grindavík Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Sara Björk komin heim Sport Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Körfubolti Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Körfubolti Fleiri fréttir Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Sjá meira