Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Samúel Karl Ólason skrifar 16. maí 2026 13:25 Donald Trump sagði frá árásinni í nótt og gaf hann þá til kynna að Bandaríkjmenn hefðu uppljóstrara innan raða Íslamska ríkisins í Afríku. AP/Mark Schiefelbein Næstæðsti yfirmaður Íslamska ríkisins á heimsvísu var felldur í árás bandarískra og nígerskra hermanna í Nígeríu í nótt. Abu Bilal al-Minuki var mjög valdamikill innan hryðjuverkasamtakanna og hafði spilað stóra rullu í upprisu ISIS í Afríku og þá sérstaklega á Sahel-svæðinu.
Al-Minuki er talinn hafa spilað stóra rullu í því þegar Íslamska ríkið í Vestur-Afríku (ISWAP) varð til með aðskilnaði við Boko Haram árið 2016. Verði dauði hans staðfestur yrði þetta í fyrsta sinn sem tekist hefur að ráða svo háttsettan leiðtoga ISWAP af dögum og gæti það leitt til töluverðrar upplausnar innan hryðjuverkasamtakanna og tveggja deilda þeirra í Afríku, ISWAP og ISIS á Sahelsvæðinu (ISSP) sem eiga nú í samkeppni og jafnvel átökum við önnur hryðjuverkasamtök á Sahel-svæðinu. Það eru Jama'at Nusrat al-Islam wal-Muslimin (JNIM) sem eru tengd al-Qaeda. Al-Minuki er talinn hafa verið mikilvægur milliliður í samstarfi ISWAP og ISSP. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, opinberaði árásina á samfélagsmiðlum í gær og sagði frá því að al-Minuki hefði verið felldur. Í færslu sem hann birti á Truth Social, hans eigin samfélagsmiðli, skrifaði Trump að árásin hefði heppnast fullkomlega og að einn virkasti hryðjuverkamaður heims hefði verið felldur. „Abu-Bilal Al-Minuki, næstráðandi hjá ISIS á heimsvísu, hélt að hann gæti falið sig í Afríku en hann vissi þó ekki að við höfðum heimildarmenn sem héldu okkur upplýstum um hvað hann var að gera. Hann mun ekki hrella íbúa Afríku lengur eða hjálpa við að skipuleggja árásir gegn Bandaríkjamönnum,“ skrifaði Trump. Al-Minuki er frá Nígeríu og hefur, eftir því sem best er vitað, haldið til þar í landi og nærliggjandi ríkjum alla sína ævi. Þá sagði forsetinn að með dauða al-Minuki hefði verulega dregið úr getu ISIS á heimsvísu. Í yfirlýsingu frá yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Afríku, AFRICOM, segir að árásin hafi verið gerð í norðausturhluta Nígeríu í nótt. Talið er að þó nokkrir ISIS-liðar hafi verið felldir og þar á meðal séu nokkrir leiðtogar. Engan Bandaríkjamann mun hafa sakað í árásinni. Ekki liggur fyrir í hverju árásin fól í sér en forsvarsmenn AFRICOM hafa birt myndband af árásinni sem virðist hafa verið tekið úr dróna eða eftirlitsflugvél og sýnir loftárás á nokkrar byggingar. Auk þess virðist sem myndbandið sýni skothríð á jörðu niðri. Last night's operation targeted a significant presence of ISIS fighters in Northeastern Nigeria eliminating multiple high value individuals including Abu-Bilal al-Minuki. pic.twitter.com/lNj4AMSITH— U.S. Africa Command (AFRICOM) (@USAfricaCommand) May 16, 2026 Bandaríkjamenn felldu í fyrra leiðtoga Íslamska ríkisins í Írak og Sýrlandi. Sá hét Abdallah Makki Muslih al-Rifai og var næstráðandi ISIS á heimsvísu á undan al-Minuki. Sjá einnig: Felldu næstráðandi leiðtoga Íslamska ríkisins Frá því bandarískir hermenn duttu í „lukkupottinn“ og felldu Abu Bakr al-Baghdadi, stofnanda Íslamska ríkisins, í áhlaupi í Sýrlandi árið 2019, hafa leiðtogar hryðjuverkasamtakanna ekki verið langlífir. Þeir hafa verið felldir í áhlaupum og loftárásum, hver á fætur öðrum, á undanförnum árum. Núverandi leiðtogi Íslamska ríkisins kallast Abu Hafs al-Hashimi al-Qurashi og varð hann kalífi í ágúst 2023. Tiltölulega lítið hefur farið fyrir honum síðan þá.
Bandaríkin Nígería Hernaður Hryðjuverkastarfsemi Donald Trump Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira