Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. maí 2026 08:00 Hákun West av Teigum fór mikinn þegar Færeyjar tryggðu sér sæti á HM í fyrsta sinn. getty/Soeren Stache Hákun West av Teigum gleymir gærdeginum eflaust ekki í bráð. Hann sló markamet færeyska handboltalandsliðsins þegar það tryggði sér sæti á HM í fyrsta sinn.
Færeyjar unnu Bosníu, 33-28, í seinni leik liðanna í HM-umspilinu í gær. Færeyingar unnu fyrri leikinn í Bosníu, 22-24, og einvígið samanlagt með sjö marka mun, 57-50. „Þetta snerist ekki svo mikið um hvernig Bosnía spilaði, heldur meira um hvernig við spiluðum sjálfir og um hugarfar og líkamstjáningu,“ sagði Hákun við Kringvarpið eftir leikinn í gær. Hann skoraði ellefu mörk í leiknum og er orðinn markahæsti leikmaður í sögu færeyska landsliðsins. Enginn vafi lék þó á því í huga Hákuns hvort afrekið var merkilegra; að komast á HM eða slá markametið. „Það fyrra, að komast á HM. En hitt er skemmtilegt og ég er stoltur af því að vera markahæstur hingað til. Svo er spurningin hvort Elias ætli að elta mig,“ sagði Hákun og vísaði til skærustu stjörnu færeyska liðsins, Eliasar Ellefsen á Skipagøtu, sem gat ekki tekið þátt í leikjunum gegn Bosníu vegna meiðsla. Færeyjar töpuðu fyrir Norður-Makedóníu í umspili um að komast á HM 2025 með minnsta mun, 61-60. Hákun var glaður að hafa náð markmiðinu að þessu sinni. „Við erum miklu þroskaðri sem leikmenn. Þegar ég lít til baka var ég afskaplega ungur. Við Óli [Mittún], Elias, Vilhelm [Poulsen] höfum allir tekið skref upp á við og spilum með félagsliðum erlendis, svo þetta er miklu þroskaðra lið, og ég býst við að það eigi bara eftir að verða betra,“ sagði Hákun sem leikur með Füchse Berlin í Þýskalandi. Færeyska landsliðið hefur verið í mikilli sókn á undanförnum árum og lék á EM 2024 og 2026. Og nú eru Færeyingar komnir á HM 2027 sem fer fram í Þýskalandi.
HM karla í handbolta 2027 Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira