Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Agnar Már Másson skrifar 17. maí 2026 17:55 Óðinn Svan Óðinsson er oddviti L-listans. Hans framboð tapaði fulltrúa frá síðustu kosningum. Vísir/Einar Meirihlutaviðræður eru hafnar á Akureyri í dag, daginn eftir sveitarstjórnarkosningar, þar sem L-listinn og Sjálfstæðisflokkurinn vilja skipta út Miðflokknum fyrir Framsókn til þess að halda meirihlutasamstarfi sínu áfram.
Sex manna meirihluti L-lista, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks féll á Akureyri í sveitarstjórnarkosningum í gær þar sem L-listinn missti einn fulltrúa frá síðustu kosningum 2022. Tvö fyrrnefndu framboðin ætla samt að reyna að halda áfram í meirihluta með því að skipta Miðflokknum út fyrir tvo fulltrúa Framsóknarflokksins, sem bætir við sig einum fulltrúa frá síðustu kosningum. ‹ › Meirihlutaviðræður L, D og B-lista hófust því í dag og ganga vel að sögn oddvita L-listans. „Ég myndi nú ekki segja að við séum komin langt en við erum búin að taka einn fund og búin að boða næsta,“ segir Óðinn Svan Óðinsson, nýr oddviti L-listans. „En þetta bara gengur vel samt.“ Ný bæjarstjórn Akureyrar.vísir/sara Sjálfstæðisflokkurinn og L-listinn hlutu rúmlega nítján prósent atkvæða hvor um sig og fá fyrir vikið tvo fulltrúa hvor. Framsókn hlaut fimmtán prósent atkvæða og fær einnig tvo fulltrúa. Samfylkingin fékk einnig tvo fulltrúa en Miðflokkur, Viðreisn og Akureyrarlistinn fengu hver um sig einn fulltrúa. Viðreisn náði ekki manni inn. Spurður hvort nokkur málefnaágreiningur hafi komið upp í viðræðum segir hann að þess hafi ekki gætt enn. „Það eru engir stórir árekstrar enn þá,“ segir Óðinn, sem er bjartsýnn. „Auðvitað þarf að slípa þetta til en þetta lítur bara vel út.“ Hvorki náðist í oddvita B-listans né D-listans við vinnslu fréttar.
Miðflokkurinn Akureyri Sjálfstæðisflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira