Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Rakel Sveinsdóttir skrifar 18. maí 2026 07:00 Sveitastjórnarkosningum fylgir ákveðið spennustig. Spennufall í kjölfar kosninga getur því endurspeglast í rólegum fyrsta vinnudegi. Því þetta er einfaldlega dagurinn þar sem við erum að jafna okkur. Vísir/Getty Mánudagurinn eftir kosningar. Búmm! Niðurstöður liggja fyrir og samfélagið í heild sinni getur andað aðeins léttar. Á meðan fjölmiðlar draga fram helstu eftirlegukindur helgarinnar og sérfræðingar halda áfram að rýna í mögulegar útkomur viðræðna.
Á ensku er talað um ákveðið recovery state í kjölfar mikillar spennu. Því það er eitt af því sem gerist fyrir kosningar; samfélagið í heild sinni fer á ákveðið spennustig. Ef við leyfum okkur að þýða recovery state sem hálfgert spennufall, þýðir það að í spennufalli er heilinn okkar þreyttur, einbeitingin minni og afköstin okkar tímabundið minni. Sett í samhengi við daginn í dag má gera ráð fyrir að ef fólk er að upplifa einhverja leti í vinnunni í dag, þá er þetta ekki leti í raun. Heldur spennufall og eðlilegt framhald af því að kosningarnar voru að klárast um helgina. Um svona spennufall má lesa meira um í fínum pistli Harvard Business Review, sjá hér. Það sem þetta þýðir er að dagurinn í dag er í raun dagurinn þar sem við erum að jafna okkur. Að hann sé aðeins rólegri en flestir dagar og við vinnum aðeins minna þótt við séum á staðnum er eðlilegt. Svo eðlilegt reyndar að í raun ættu vinnustaðir jafnvel að gera ráð fyrir rólegum degi. Árið 2024 voru áhrif forsetakosninganna í Bandaríkjunum rannsökuð í atvinnulífinu. Meðal annars fjárhagsleg áhrif. Sérfræðingur í mannauðsmálum sem MarketWatch ræddi þá við sagði þann dag sem skipti mestu máli vera vinnudaginn í kjölfar kosninga. Þar sem hluti hópsins mætti til vinnu ánægður með kosningarnar en hluti ekki. Þessum málum tengdum voru fyrirtæki beinlínis hvött til að draga úr álagi strax eftir kosningar. Meðal annars með aðgerðum eins og: Að halda færri fundi Forðist skilatíma verkefna næstu daga á eftir Leyfa jafnvel meiri heimavinnu/fjarvinnu og minnka þannig spennustig á vinnustaðnum Hvað svo sem er best að gera má að minnsta kosti ætla að ef rólegheitin svífa yfir vötnum á einhverjum vinnustöðum í dag og einhverjir aukakaffibollar eru drukknir megi ætla að allt sé þetta liður í því að lítið samfélag var í heild sinni að kjósa sér nýja forystu um land allt, með tilheyrandi spennustigi. Sem búmm! Nú er lokið.
Góðu ráðin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vinnumarkaður Tengdar fréttir Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Nú þegar líður að kosningum er eins og spennan í andrúmsloftinu magnist. Ekki aðeins gefa frambjóðendur og kosningastjórar hressilega í, heldur virðist eins og samfélagið allt færist upp á næsta stig í ósýnilegri adrenalíngjöf. 12. maí 2026 07:02 Systkinin öll verið forsetar: „Tvö félög, tvöfalt stuð!“ „Erum við hér að tala við verðandi forseta Íslands eða ráðherra?“ er fyrsta spurningin til þeirra systkina Valtýs Örn, Elínar Höllu og Ólafs Helga Kjartansbarna. Því öll hafa þau sinnt hlutverki forseta málfundafélagsins Framtíðar í MR. 17. apríl 2025 08:02 „Þá hugsuðu menn: Fínt, fáum konurnar í þessi störf“ „Þegar ég kom inn á vinnumarkaðinn fyrst hvarflaði það ekki að mörgu fólki um þrítugt að fara að vinna hjá hinu opinbera, það þótti svolítið vera eins og að setjast í „helgan stein,“ segir Baldur Gísli Jónsson yfirmaður mannauðsráðgjafar Intellecta. 2. janúar 2025 07:02 Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska,“ segir Athena Neve Leex, stjórnarkona í UAK, félagi Ungra athafnakvenna, í samtali um mikilvægi fjölmenningar og inngildingar en í byrjun þessa mánaðar stóð félagið fyrir viðburði þessu máli tengt. 20. nóvember 2024 07:01 Mest lesið Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Gullslegið klósett Bakkavararbræðra flottast Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Segðu Já í vinnunni og það strax! Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja Sjá meira
Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Nú þegar líður að kosningum er eins og spennan í andrúmsloftinu magnist. Ekki aðeins gefa frambjóðendur og kosningastjórar hressilega í, heldur virðist eins og samfélagið allt færist upp á næsta stig í ósýnilegri adrenalíngjöf. 12. maí 2026 07:02
Systkinin öll verið forsetar: „Tvö félög, tvöfalt stuð!“ „Erum við hér að tala við verðandi forseta Íslands eða ráðherra?“ er fyrsta spurningin til þeirra systkina Valtýs Örn, Elínar Höllu og Ólafs Helga Kjartansbarna. Því öll hafa þau sinnt hlutverki forseta málfundafélagsins Framtíðar í MR. 17. apríl 2025 08:02
„Þá hugsuðu menn: Fínt, fáum konurnar í þessi störf“ „Þegar ég kom inn á vinnumarkaðinn fyrst hvarflaði það ekki að mörgu fólki um þrítugt að fara að vinna hjá hinu opinbera, það þótti svolítið vera eins og að setjast í „helgan stein,“ segir Baldur Gísli Jónsson yfirmaður mannauðsráðgjafar Intellecta. 2. janúar 2025 07:02
Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska,“ segir Athena Neve Leex, stjórnarkona í UAK, félagi Ungra athafnakvenna, í samtali um mikilvægi fjölmenningar og inngildingar en í byrjun þessa mánaðar stóð félagið fyrir viðburði þessu máli tengt. 20. nóvember 2024 07:01