Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 18. maí 2026 15:35 Michael O'Leary forstjóri írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair. EPA/RODRIGO JIMENEZ Michael O'Leary forstjóri írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair segist hafa „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti félagsins í sumar þrátt fyrir viðvarandi eldsneytisskort margra flugfélaga vegna Íransstríðsins. Hann varar þó við því að flugfargjöld geti hækkað síðar á árinu.
Forstjórinn segir að Ryanair, sem er líklega eitt þekktasta lággjaldaflugfélag heims, hafi fundið út úr vandanum og tryggt sér nægar eldsneytisbirgðir, að því er fram kemur í breska blaðinu Guardian. Líkt og flestir vita hafa lokanir Írana á Hormússundi haft afdrifaríkar afleiðingar í för með sér fyrir heimsmarkaðsverð á olíu sem og fyrir eldsneytisbirgðastöðu. Þakkar Noregi, Afríku og Ameríku „Það voru uppi alvöru áhyggjuraddir um þessi mál í Evrópu fyrir tveimur mánuðum síðan. Við höfum núna nær engar áhyggjur af eldsneytisbirgðum í Evrópu. Áskorunin felst í flugfargjöldunum,“ segir O'Leary. Hann segir flugfélagið eiga nóg af birgðum og þakkar það kaupum á eldsneyti frá vesturhluta Afríku, Noregi og Ameríku. Forstjórinn segist ekki eiga von á því að átökin í Íran haldi áfram né að Hormússundi verði áfram lokað á næsta ári. Muni það gerast muni það haga geigvænleg áhrif í för með sér fyrir evrópsk lággjaldaflugfélög. „Ef þetta heldur áfram næstu tólf mánuði þá munu flugfélög liggja í valnum í Evropu í vetur,“ segir forstjórinn. Guardian hefur eftir Neil Sorahan fjármálastjóra Ryanair að félagið sé bjartsýnt á sumarið. Eftirspurn sé mikil en fólk bíði frekar með að bóka flugmiða sína á þessum óvissutímum. „Þannig að við höfum ekki sömu yfirsýn yfir stöðuna og allajafna á milli júlí og september. Bókunarstaða á flugmiðum flugferða sem stutt er í er sterk en ef fólk bíður of lengi getur það þurft að sætta sig við hærri fargjöld.“
Flug Ferðaþjónusta Írland Ferðalög Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Viðskipti innlent Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Atvinnulíf Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Viðskipti erlent Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Viðskipti erlent Engar hópuppsagnir í apríl Viðskipti innlent Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Viðskipti innlent Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira