Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 21. október 2026 21:32 Mark Zuckerberg forstjóri Meta og stofnandi Facebook með Donald Trump Bandaríkjaforseta á fundi um gervigreind í Hvíta húsinu í september. EPA/SHAWN THEW Bandaríska samfélagsmiðlarisanum Meta hefur verið gert að greiða sekt að andvirði 25 milljarða Bandaríkjadollara eða um þrjú þúsund milljarða króna vegna þess hvernig fyrirtækið laug um meðferð þess á gögnum notenda samfélagsmiðilsins Facebook. Um er að ræða stærstu sekt sem fyrirtækið hefur fengið.
Í umfjöllun BBC kemur fram að dómari í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum hafi gert fyrirtækinu að greiða upphæðina í kjölfar tveggja vikna réttarhalda sem fóru fram fyrr á árinu en Nýja-Mexíkó stefndi fyrirtækinu, sem á Facebook, Instagram og Whatsapp, fyrir meðhöndlun þess á upplýsingum og veitingu þeirra um notendur til ráðgjafafyrirtækisins Cambridge Analytica. Cambridge Analytica nýtti gögn og upplýsingar um milljónir notenda Facebook í tengslum við pólitíska ráðgjöf sína. Mesta athygli vakti starfsemin í kringum bandarísku forsetakosningarnar 2016 þegar Donald Trump var kjörinn forseti í fyrsta sinn. Ríkisdómstóll Nýju-Mexíkó komst að þeirri niðurstöðu að Meta hefði vísvitandi villt um fyrir almenningi um meðferð þess á gögnum notenda sem og um það hvernig fyrirtækið hagnast á efni á miðlinum sem inniheldur hatursorðræðu. Stjórnendur Meta hafa endurtekið lýst því yfir undanfarin ár að gögnum um notendur sé ekki deilt með þriðja aðila. Fram kemur í umfjöllun BBC að Meta hafi neitað sök. Fyrirtækið segir að um aðför að tjáningarfrelsinu sé að ræða og tilraunir til að skattleggja það. Francis Mathew dómari í málinu segir hins vegar að ljóst væri að fyrirtækið hefði viðhaft rangfærslur gagnvart almenningi um það hvernig gögn þeirra á Facebook hafi verið notuð og þeim deilt af ásetningi, frá árunum 2010 til 2021. Yfirlýsingar æðstu stjórnenda fyrirtækisins, meðal annars Mark Zuckerberg, hafi verið til þess fallnar að villa um fyrir almenningi.
Samfélagsmiðlar Bandaríkin Tengdar fréttir Hér getur þú séð hvort að þínum gögnum var deilt með Cambridge Analytica Facebook hefur birt tól þar sem notendur geta komist að því hvort að upplýsingum um þá var deilt með hinu umdeilda breska fyrirtæki Cambridge Analytica. 10. apríl 2018 16:27 Mest lesið Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Kostar allt að 580 þúsund Neytendur Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Atvinnulíf Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Fleiri fréttir Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira
Hér getur þú séð hvort að þínum gögnum var deilt með Cambridge Analytica Facebook hefur birt tól þar sem notendur geta komist að því hvort að upplýsingum um þá var deilt með hinu umdeilda breska fyrirtæki Cambridge Analytica. 10. apríl 2018 16:27