Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Samúel Karl Ólason skrifar 18. maí 2026 21:51 Jens-Frederik Nielsen, formaður landstjórnar Grænlands. Hann sagðist í dag hafa lagt nokkrar rauðar línur við erindreka Donalds Trump. EPA/OSCAR SCOTT CARL Jens-Frederik Nielsen, formaður landstjórnar Grænlands, segir Grænlendinga ekki til sölu og að ekki sé hægt að semja um sjálfsákvörðunarrétt þeirra. Þetta sagðist Nielsen hafa ítrekað fyrir sérstökum erindreka Bandaríkjaforseta gagnvart Grænlandi sem lenti þar í gær.
Nielsen hélt í dag blaðamannafund með Múte B. Egede, utanríkisráðherra og fyrrverandi formanni landstjórnar Grænlands. Þar sagði Egede að ekki kæmi til greina að selja Grænland. Grænlendingar myndu stjórna Grænlandi að eilífu. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur um nokkuð skeið talað um að Bandaríkin verði að eignast Grænland og hefur hann jafnvel krafist þess og sagt að Bandaríkin eigi rétt á því að eignast Grænland. Forsetinn hefur kvartað harðan yfir því að ráðamenn í Evrópu hafi staðið í vegi yfirtöku hans á Grænlandi. Viðræður milli Bandaríkjamanna annars vegar og Grænlendinga og Dana hins vegar, þar sem Grænland er sjálfsstjórnarsvæði innan danska konungsríkisins, hafa átt sér stað á undanförnum mánuðum innan tiltekins vinnuhóps. Sjá einnig: Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Meðal þess sem hefur verið til viðræðna eru nýjar bandarískar herstöðvar á Grænlandi en Bandaríkjamenn eru sagðir hafa krafist þess að herstöðvar þessar yrðu skilgreindar sem bandarískt landsvæði. Frá Nuuk, höfuðborg Grænlands, í mars.AP/Evgeniy Maloletka „Sjálfboðaliði“ vill skoða heilbrigðiskerfið Jeff Landry, ríkisstjóri Louisiana og áðurnefndur erindreki Trumps gagnvart Grænlandi, mætti til Grænlands í gær með lækni í för. Sá heitir Joseph Griffin en í viðtali við TV2 sagðist hann vilja kynna sér heilbrigðiskerfi Grænlands. Landry ætlar á viðskiptaráðstefnu í vikunni og svo munu Bandaríkjamenn opna nýja ræðismannsskrifstofu í Nuuk á fimmtudaginn. Læknirinn ítrekaði að hann hefði engin tengsl við stjórnvöld, þó hann væri í fylgd erindreka Trumps, og sagðist sjálfboðaliði. Eins og frægt er hét Trump því að senda spítalaskip til Grænlands, án þess þó að standa við það. Trump og hans bandamenn hafa ítrekað talað eins og heilbrigðiskerfi Grænlands sé hræðilega slæmt og illa sé komið fram við Grænlendinga. Þá eru Griffin ekki eini „sjálfboðaliðinn“ sem fer frá Bandaríkjunum til Grænlands. Fyrr í mánuðinum bárust fregnir af eldri manni sem gekk um götur Nuuk og bauð fólki 25 milljónir króna fyrir að greiða atkvæði með því að Grænland yrði hluti af Bandaríkjunum, kæmi til slíkrar atkvæðagreiðslu. Sjá einnig: Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Fyrr á árinu voru sagðar fréttir af því að þrír Bandaríkjamenn, sem tengdust Trump, væru undir eftirliti dönsku leyniþjónustunnar. Þeir voru sakaðir um að eiga í eins konar leynilegri áróðursherferð í Grænlandi og leggja grunninn að mögulegri yfirtöku Bandaríkjanna á eyjunni. Nielsen og Egede funduðu í dag með Landry og föruneyti hans, ásamt Ken Howery, sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku. Grænlendingarnir sögðust á blaðamannafundinum eftir viðræðurnar við Bandaríkjamennina að þeir hefðu hafa lagt ákveðnar línur á þessum fundi en hann hefði verið á góðum nótum. Þeir sögðu að Bandaríkjamenn yrðu að bera virðingu fyrir Grænlendingum og að viðræður um samband ríkjanna yrðu að eiga sér stað innan vinnuhópsins og fara þar gegnum hefðbundið ferli. Egede sagði að samband ríkjanna hefði beðið hnekki en Grænlendingar væru tilbúnir til aukins samstarfs við Bandaríkjamenn. „Ósanngjarnar“ kröfur til Grænlendinga New York Times sagði frá því í dag að Grænlendingar og Danir hefðu áhyggjur að því að innan áðurnefnds vinnuhóps um samband Bandaríkjanna og Grænlands væru Bandaríkjamenn með umfangsmiklar kröfur. Þar á meðal væru kröfur sem Grænlendingar ættu erfitt með að sætta sig við. Þá eru Grænlendingar sagðir óttast að þegar stríði Bandaríkjanna gegn Íran ljúki, muni Trump aftur byrja að hóta yfirtöku Grænlands. Ein af þeim kröfum Bandaríkjamanna sem Grænlendingar eru ósáttir við er að bandarískir hermenn fái heimild til að vera í Grænlandi eins lengi og Bandaríkjamenn vilja. Jafnvel þó Grænland yrði sjálfstætt frá Danmörku, þá mættu Grænlendingar aldrei vísa hermönnunum á brott. Önnur snýr að því að Bandaríkjamenn vilja í raun hafa neitunarvald yfir milliríkjasamningum sem Grænlendingar gera. Það yrði svo þeir gætu komið í veg fyrir að Grænlendingar geri samninga við Rússa eða Kínverja. Bæði Grænlendingar og Danir eru sagðir mjög mótfallnir þessari kröfu. Viðræðurnar hafa einnig snúið að nýtingu náttúruauðlinda en talið er að finna megi mikið af þeim undir jörðu og ís í Grænlandi. Þar á meðal er olía, úraníum og sjaldgæfir málmar svokallaðir. Sjá einnig: Af hverju langar Trump í Grænland? Grænlendingum finnst þessar kröfur of miklar og óttast að það myndi koma verulega niður á fullveldi þeirra að verða við þeim. Justus Hansen, þingmaður, sagði í samtali við NYT, að ef orðið yrði við kröfunum yrðu hendur næstu kynslóða Grænlendinga bundnar. Grænlendingar gætu í rauninni ekki fengið sjálfstæði. „Við gætum allt eins flaggað í hálfa stöng.“ Aðrir ráðamenn á Grænlandi slógu á svipaða strengi, eins og Pipaluk Lynge, formaður utanríkismálanefndar grænlenska þingsins. „Ekkert af þessu er sanngjarnt,“ sagði hún. „Þetta virðist vera allt eða ekkert. Besta útkoman er einfaldlega að komast hjá innrás eða yfirtöku.“
Grænland Bandaríkin Danmörk Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Donald Trump Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira