Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Kristján Már Unnarsson skrifar 19. maí 2026 20:45 Jeff Landry, ríkisstjóri Louisiana, kominn til Nuuk. Hann er sérlegur erindreki Trumps gagnvart Grænlandi. TV 2 Heimsókn sérstaks erindreka Trumps Bandaríkjaforseta til Grænlands fær kuldaleg viðbrögð heimamanna. Utanríkisráðherra Grænlands segir hann hafa fengið skýr skilaboð um að Grænland sé ekki til sölu.
Í kvöldfréttum Sýnar mátti sjá Jeff Landry, ríkisstjóra Louisiana og sérlegan erindreka Trumps, lentan á flugvellinum í Nuuk. Grænlendingar sem sáu þotu Bandaríkjastjórnar komna að flugstöðinni í fyrradag með erindrekann um borð virtust ekki hrifnir. Mathias Lundblad, smiður í Nuuk. Þota Bandaríkjastjórnar fyrir aftan.TV 2 „Þeir geta komið til Grænlands en þeir geta ekki yfirtekið landið,“ sagði Mathias Lundblad, smiður í Nuuk. „Þetta er ögrandi á vissan hátt. Bandaríkjamenn hafa stjórnað ferðinni um nokkurt skeið og mér sýnist þeir gera það sem þeim hentar án þess að spyrja Grænlendinga,“ sagði Mads Kirk, íbúi í Nuuk. Mads Kirk með dóttur sinni á flugvellinum.TV 2 Erik Rasmussen lögfræðingur sagði dönsku stöðinni TV 2 að í augum Grænlendinga væri Jeff Landry bara ferðamaður sem gæti bara snúið við og farið heim. Spurður hvað hann myndi segja við hann ef þeir hittust á götu: „Ég myndi líklega segja: Farðu til fjandans,“ svaraði Erik Rasmussen. „Farðu til fjandans,“ eru skilaboð Eriks Rasmussen til erindreka Trumps. TV 2 Jeff Landry fékk leiðsögn um miðbæ Nuuk í fylgd Jørgens Boassen, helsta grænlenska stuðningsmanns Trumps, en opinber tilgangur heimsóknar erindrekans er að sitja ráðstefnu um framtíð Grænlands. En hvað vill hann ræða við Grænlendinga? „Tækifæri, viðskiptatækifæri til þess að auka viðskipti Bandaríkjanna á Grænlandi og leita leiða til að styrkja sambandið,“ svaraði Jeff Landry í viðtali við TV 2, sem sjá má hér í sjónvarpsfrétt Sýnar: -Varstu í sambandi við Trump forseta fyrir þessa heimsókn? „Já, ég talaði við hann í gærkvöldi.“ -Um hvað rædduð þið? „Hann sagði: „Farðu þangað og eignastu fullt af nýjum vinum“,“ svaraði erindreki Trumps. Jørgen Boassen, helsti stuðningsmaður Trumps á Grænlandi, fylgdi Jeff Landry um miðbæ Nuuk.TV 2 Jeff Landry ræddi við þá Jens-Frederik Nielsen, formann landstjórnar Grænlands, og Múte B. Egede utanríkisráðherra, sem sagði þetta að fundi loknum: „Hann fékk skýr skilaboð um þau mörk sem við drögum og það sem við höfum sagt allan tímann: Grænland er ekki til sölu. Það er ekki hægt að yfirtaka land í eigu grænlensku þjóðarinnar,“ sagði utanríkisráðherrann. Múte B. Egede, utanríkisráðherra Grænlands.TV 2 Og fréttamenn hafa hópast um Jeff Landry á götum Nuuk. „Við komum til að læra og hlusta,“ sagði hann. -Eru margir fundir á dagskrá á ráðstefnunni? Hvaða skilaboðum býstu við? „Ég vil heyra hvaða tækifæri eru í boði fyrir okkur til að auka enn frekar umsvif Bandaríkjanna hér á Grænlandi,“ svaraði Jeff Landry, sérlegur erindreki Trumps gagnvart Grænlandi. Jeff Landry ræðir við fréttamenn á göngu um Nuuk.TV 2
Grænland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Danmörk Donald Trump Bandaríkin Tengdar fréttir Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Jens-Frederik Nielsen, formaður landstjórnar Grænlands, segir Grænlendinga ekki til sölu og að ekki sé hægt að semja um sjálfsákvörðunarrétt þeirra. Þetta sagðist Nielsen hafa ítrekað fyrir sérstökum erindreka Bandaríkjaforseta gagnvart Grænlandi sem lenti þar í gær. 18. maí 2026 21:51 Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur hafa fundað að minnsta kosti fimm sinnum á þessu ári til að ræða opnun þriggja nýrra herstöðva Bandaríkjahers á Grænlandi. BBC hefur eftir heimildarmönnum að viðræður gangi vel. 12. maí 2026 06:45 Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá því á Truth Social í gær að hann hefði skipað Jeff Landry, ríkisstjóra Louisiana, sem sérlegan sendifulltrúa sinn í málefnum Grænlands. 22. desember 2025 07:14 Efast um að Bandaríkin leyfi sjálfstætt Grænland Ítrekaðar yfirlýsingar Trumps Bandaríkjaforseta um að hann vilji eignast Grænland hafa leitt til bakslags í sjálfstæðisbaráttu Grænlendinga, segir stjórnmálakonan fyrrverandi Inga Dóra Guðmundsdóttir. Hún efast um að Bandaríkin myndu leyfa Grænlandi að verða sjálfstætt ríki. 9. september 2025 22:20 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira
Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Jens-Frederik Nielsen, formaður landstjórnar Grænlands, segir Grænlendinga ekki til sölu og að ekki sé hægt að semja um sjálfsákvörðunarrétt þeirra. Þetta sagðist Nielsen hafa ítrekað fyrir sérstökum erindreka Bandaríkjaforseta gagnvart Grænlandi sem lenti þar í gær. 18. maí 2026 21:51
Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur hafa fundað að minnsta kosti fimm sinnum á þessu ári til að ræða opnun þriggja nýrra herstöðva Bandaríkjahers á Grænlandi. BBC hefur eftir heimildarmönnum að viðræður gangi vel. 12. maí 2026 06:45
Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá því á Truth Social í gær að hann hefði skipað Jeff Landry, ríkisstjóra Louisiana, sem sérlegan sendifulltrúa sinn í málefnum Grænlands. 22. desember 2025 07:14
Efast um að Bandaríkin leyfi sjálfstætt Grænland Ítrekaðar yfirlýsingar Trumps Bandaríkjaforseta um að hann vilji eignast Grænland hafa leitt til bakslags í sjálfstæðisbaráttu Grænlendinga, segir stjórnmálakonan fyrrverandi Inga Dóra Guðmundsdóttir. Hún efast um að Bandaríkin myndu leyfa Grænlandi að verða sjálfstætt ríki. 9. september 2025 22:20