Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Rakel Sveinsdóttir skrifar 23. maí 2026 10:02 Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkur, byrjar alla morgna á hugleiðslu og bæn en segir þau hjónin síðan eiga góða stund með kaffibollanum áður en haldið er til vinnu. Sú samvera sé nokkuð heilög stund. Vísir/Vilhelm Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkur, er einn þeirra sem er oftast vaknaður á undan klukkunni en segist þó hafa breyst frá því að vera algjör B-maður yfir í að vera blanda af A og B. Þessi dægrin er Ingvar að lesa bók um ömmu sína fyrir svefninn.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Ég vakna yfirleitt á milli hálfsjö og sjö. Klukkan er stillt korter í sjö en ég er oftast vaknaður á undan klukkunni.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Ég byrja alla morgna á hugleiðslu og bæn til þess að tengja mig inn í daginn. Mér finnst það alveg nauðsynlegt. Við hjónin eigum svo góða stund með kaffibollann áður en við förum í vinnuna. Það er svolítið heilagur tími hjá okkur. Yfirleitt er ég mættur í vinnuna upp úr klukkan átta en stundum síðar ef ég dett í að opna póstinn áður en ég legg af stað.“ Ef þú værir hetja í teiknimynd, hver værir þú þá? Ætli ég myndi ekki vilja vera blanda af Prins Valiant og Múmínálfinum. Múmínálfurinn er góðhjartaður og hlýr auk þess sem fjölskylda og vinir skipta hann miklu máli. Hann er líka forvitinn en á sama tíma svolítið saklaus og finnur fegurðina í einföldum hlutum. Hann vill að fólk fái að vera það sjálft. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á fólki. Prins Valiant er kannski æskuhetjan ásamt Hróa hetti. Prins Valiant er hugrakkur og heiðarlegur leiðtogi sem vill berjast fyrir réttlæti. Þetta eru karakterar með þau gildi sem ég vil hafa að leiðarljósi. Lífið er ekki alltaf einfalt og margar áskoranir sem við þurfum að mæta á lífsleiðinni. Ég trúi því að hver raun og hver áskorun feli í sér tækifæri til að læra og gera okkur að betri manneskjum.“ Dagatalið í Outlook er ómissandi hjá Ingvari fyrir skipulagið en hann notar líka verkefnalistann í dagatalinu (e. task) auk þess að búa vel að frábæru teymi samstarfsfólks, sem hann segir algjörlega nauðsynlegt líka.Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Þessa dagana og vikurnar er ég að vinna að byggingu nýrrar bálstofu. Það verður mikill léttir fyrir alla og ekki síst fyrir starfsfólkið okkar og nágranna bálstofunnar. Bálstofan verður búin fullkomnustu tækni en það var fyrir löngu kominn tími á nýja bálstofu. Ef allt gengur að óskum þá ætti að vera hægt að opna nýja bálstofu í lok næsta árs. Við hjá Kirkjugörðunum erum einnig að undirbúa sumarið en það er mikill framkvæmdatími og þá rúmlega þrefaldast starfsmannafjöldinn hjá okkur. Ekki veitir af því að við erum með um 75 hektara lands og vel á annað hundrað þúsund leiði. Það er alltaf líf og fjör í kirkjugörðunum en mest á sumrin. Það er dásamlegt að heyra fuglasönginn og sjá gróðurinn lifna við. Í kirkjugarðinum í Fossvogi er stærsta skóglendi á höfuðborgarsvæðinu og mesta skógarþrastarbyggð á landinu, þannig að það eru ansi margir íbúar hjá okkur í kirkjugörðunum.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? Dagatalið í outlook er algjörlega ómissandi. Ég nota „task listann“ og dagatalið til þess að skipuleggja og vinna verkefnin. Ég er reyndar svo heppinn að vinna með frábæru samstarfstarfsfólki sem ég gæti ekki verið án við að skipuleggja vinnuna en það er í mörg horn að líta. Það er ómetanlegt að vinna með góðu teymi starfsfólks.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Þetta er svolítið margslungin spurning. Þegar ég var yngri þá var ég algjör B maður og átti það til að fara seint að sofa. Mér varð oftast mest úr verki á kvöldin þegar allt var komið í ró. Ætli ég sé ekki blanda af A og B gerð í dag. Konan mín er einmitt mikil A og B týpa og það hefur áhrif á mig, henni gæti alveg dottið í hug að byrja á einhverjum verkum mjög seint á kvöldin. Uppáhaldssetningin okkar er; það er svo gott að vera búin að þessu. Ætli ég sé ekki kominn upp í rúm upp úr klukkan ellefu og fer aldrei að sofa seinna en miðnætti, en fyrir svefninn tekur aftur við stutt hugleiðsla og bæn eða þá að ég les í bók, oft um andleg málefni, bækur um fjárrmál, stjórnun eða sögu og menningu. Ég er oftast með þrjár bækur í gangi í einu eftir því hvaða í hvaða stuði ég er. Núna er ég að lesa bók í annnað skiptið sem sonur minn gaf mér og heitir A Path with a Heart eftir Jack Kornfield og svo er ég að lesa eina fjármálabók. Á dögunum fékk ég nýja bók sem er alger konfektmoli fyrir mig, bókin er um langömmu mína Guðbjörgu Bjarnadóttur. Áhugaverð saga um merka konu og lífsbaráttuna í afskekktum dal vestur í Dýrafirði í lok nítjándu aldar en hún a marga niðja þar á meðal ótrúlega margt íslenskt afreksíþróttafólk.“ .
Kaffispjallið Tengdar fréttir Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Halldóra Skúladóttir, stofnandi Kvennaráðs og ráðgjafi vinnustaða varðandi breytingaskeiðið, segist fá svo mikið dópamínbúst af því að strika yfir kláruð verkefni á listanum að stundum skrifar hún niður hluti bara til að geta strikað yfir þau. 16. maí 2026 10:01 Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs og sjóliðsforingi, á fjögur börn en er afar morgunsvæfur. Það sem í raun bjargar morgnunum heima fyrir er árisul og góð eiginkona en almennt er Aríel síðan svo rútínufastur að meira að segja sömu fötin eru keypt aftur og aftur í verslunum. 9. maí 2026 10:02 Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Þegar Heiða Halldórsdóttir, forstjóri Orkusölunnar, var unglingur fannst henni leikarinn Johnny Depp svo sætur að hún átti stundum erfitt með að anda. Ólíkir karakterar á heimilinu setja skemmtilegan svip á morgunvenjur heimilisins. 2. maí 2026 10:03 Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Baldur Rafn Gylfason, hárgreiðslumeistari og eigandi bpro heildsölu, er vaknaður eldsnemma á morgnana og rýkur þá beint af stað á æfingu. Viðurkennir þó að fara of seint að sofa á kvöldin og væri alveg til í að festa það betur í rútínunni að ná að anda djúpt, hugleiða og rækta þakklætið á hverjum degi. 18. apríl 2026 10:01 Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, listrænn stjórnandi Iceland Innovation Week og framkvæmdastjóri Milk & Kleina, mælir með hugsanalestri því hann sparar bæði tíma og óþarfa fundi. Melkorka segist vera dottin í smá nörd á morgnana: Dagarnir byrji á skoðun tölfræði um svefn næturinnar. 25. apríl 2026 10:00 Mest lesið Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Viðskipti innlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Viðskipti innlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Sjá meira
Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Halldóra Skúladóttir, stofnandi Kvennaráðs og ráðgjafi vinnustaða varðandi breytingaskeiðið, segist fá svo mikið dópamínbúst af því að strika yfir kláruð verkefni á listanum að stundum skrifar hún niður hluti bara til að geta strikað yfir þau. 16. maí 2026 10:01
Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs og sjóliðsforingi, á fjögur börn en er afar morgunsvæfur. Það sem í raun bjargar morgnunum heima fyrir er árisul og góð eiginkona en almennt er Aríel síðan svo rútínufastur að meira að segja sömu fötin eru keypt aftur og aftur í verslunum. 9. maí 2026 10:02
Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Þegar Heiða Halldórsdóttir, forstjóri Orkusölunnar, var unglingur fannst henni leikarinn Johnny Depp svo sætur að hún átti stundum erfitt með að anda. Ólíkir karakterar á heimilinu setja skemmtilegan svip á morgunvenjur heimilisins. 2. maí 2026 10:03
Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Baldur Rafn Gylfason, hárgreiðslumeistari og eigandi bpro heildsölu, er vaknaður eldsnemma á morgnana og rýkur þá beint af stað á æfingu. Viðurkennir þó að fara of seint að sofa á kvöldin og væri alveg til í að festa það betur í rútínunni að ná að anda djúpt, hugleiða og rækta þakklætið á hverjum degi. 18. apríl 2026 10:01
Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, listrænn stjórnandi Iceland Innovation Week og framkvæmdastjóri Milk & Kleina, mælir með hugsanalestri því hann sparar bæði tíma og óþarfa fundi. Melkorka segist vera dottin í smá nörd á morgnana: Dagarnir byrji á skoðun tölfræði um svefn næturinnar. 25. apríl 2026 10:00