Viðskipti innlent

Fimm­tán milljónir til fjöl­miðla á lands­byggðinni

Atli Ísleifsson skrifar
Frá Akureyri.
Frá Akureyri. Vísir/Vilhelm

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og innviðaráðuneytið hafa úthlutað alls fimmtán milljónum króna í styrkjum til einkarekinna, staðbundinna fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins.

Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að markmið með styrkveitingunum sé að efla starfsemi staðbundinna fjölmiðla á landsbyggðinni. Þeir gegni mikilvægu hlutverki við að tryggja aðgengi almennings að upplýsingum um menningar- og samfélagsmál og styðja með þeim hætti við lýðræðisþátttöku og menningarstarf.

Fram kemur að auglýst hafi verið eftir umsóknum þann 3. september síðastliðinn með umsóknarfresti til 1. október. Alls hafi borist tíu umsóknir fyrir tilgreindan umsóknarfrest, þar af níu sem uppfylltu skilyrði reglna.

„Til úthlutunar voru 15 m. kr., 12,5 m. kr. frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og 2,5 m. kr. frá innviðaráðuneyti vegna aðgerðar C.08 í byggðaáætlun, Efling fjölmiðlunar í héraði. Fjárhæðinni er skipt jafnt á milli umsækjenda sem uppfylla skilyrði reglna nr. 833/2026.

Eftirfarandi fjölmiðlaveitur hljóta styrk, hver að upphæð 1.666.667 m. kr.

  • Akureyri.net, útgefandi Eigin herra ehf.
  • Austurglugginn og Austurfrett.is, útgefandi Útgáfufélag Austurlands ehf.
  • Bæjarblaðið Jökull, útgefandi Prentsmiðjan Steinprent ehf.
  • Dagskráin – Fréttablað Suðurlands og DFS.is, útgefandi Prentmet Oddi ehf.
  • Eyjafréttir og Eyjafrettir.is, útgefandi Eyjasýn ehf.
  • Kaffið.is, útgefandi Kaffið fjölmiðill ehf.
  • Skessuhorn og Skessuhorn.is, útgefandi Skessuhorn ehf.
  • Vikublaðið og Vikubladid.is, útgefandi Útgáfufélagið ehf.
  • Víkurfréttir og Vf.is, útgefandi Víkurfréttir ehf.,“ segir í tilkynningunni. 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×