„Við erum í nútímalýðræðisfélagi“ Kolbeinn Kristinsson skrifar 20. maí 2026 21:41 Jóhann Kristinn Gunnarsson er enginn einráður hjá Þrótti. vísir/Anton Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, var ánægður með viðbrögð sinna leikmanna eftir að Þróttur vann 4-1 sigur á Víkingi á Víkingsvelli í 5. umferð Bestu deildar kvenna.
Staðan var 1-1 í hálfleik en Þróttur tók yfir í síðari hálfleik og skoraði þrjú mörk eftir hlé. „Það er mikið talað um hvað ég segi, og við þjálfararnir, í hálfleik. En við erum í nútímalýðræðisfélagi í þessu öllu saman og málin eru rædd í hálfleik,“ sagði Jóhann Kristinn eftir leik. „Innlegg stelpnanna skiptir miklu. Þær leysa ótrúlega mikið sjálfar og mér finnst þetta verða betra með hverri vikunni, hvernig þær leysa vandamál innan liðsins og inni á vellinum sjálfar. Þær bíða ekki eftir öllu frá hliðarlínunni.“ „Mér fannst þær gera þetta frábærlega í seinni hálfleik“ Jóhann sagði að Þróttarliðið hefði farið yfir stöðuna í leikhléi og fundið lausnir á því sem betur mátti fara. „Í hálfleik ræddum við málin, þær fundu lausnir á nokkrum hlutum og við komumst að fínni niðurstöðu með hvað við ætluðum að gera næst.“ Það skilaði sér vel eftir hlé þar sem Þróttur tók völdin og gekk frá leiknum. „Mér fannst þær gera þetta frábærlega í seinni hálfleik líka og ég er bara ánægður með þær í þessu öllu saman.“ Rúllaði vel á hópnum Þróttur gerði nokkrar breytingar í leiknum og Kayla Marie Rollins fór meidd af velli í fyrri hálfleik. Jóhann sagði að hún hefði fundið fyrir aftan í læri. „Hún fékk aftan í. Hún er náttúrulega búin að hlaupa rosalega fyrir okkur í síðustu leikjum og laugardagurinn var þvílík keyrsla á móti Breiðabliki,“ sagði Jóhann. Hann var ánægður með að hafa getað dreift álaginu á hópinn. „Ég er gríðarlega ánægður með að hafa getað hvílt fyrirliðann á bekknum í dag. Það eru nokkrar sem fóru aðeins lengra heldur en við hefðum viljað, en við náðum að rúlla þessu vel.“ Jóhann segir breiddina í hópnum góða og að fleiri leikmenn séu að bíða eftir tækifærinu. „Nýir leikmenn komu inn og við eigum ennþá leikmenn sem hafa ekki fengið að sjá grasið. Eins vel og mér líður með sigurinn fyrir okkar allra hönd, þá finn ég alltaf aðeins fyrir því líka að mig langar að hleypa öllum inn á völlinn.“ „Við erum með stóran hóp og maður vill alltaf sjá leikmenn sem eru að standa sig vel og eiga skilið að koma inn á völlinn. En þær eru þolinmóðar og frábærir karakterar.“ „Við náðum að rúlla þessu vel í dag. Þetta var gott og mjög ánægjulegt,“ sagði Jóhann Kristinn að lokum.
Besta deild kvenna Þróttur Reykjavík Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ Sport „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira