Bestu mörkin: „Komið blómvöndum og öllu á þá“ Andri Broddason skrifar 21. maí 2026 15:02 Bestu mörkin voru á dagskrá í gærkvöldi og ræddu verðlaunaafhendingu Péturs Péturssonar og Ólafs Jóhannessonar. Hætt var við verðlaunaafhendinguna sem átti að fara fram fyrir leik Vals og Breiðabliks í Bestu deild karla síðasta sunnudag.
Pétur Pétursson og Ólafur Jóhannesson áttu að fá afhent ein æðstu verðlaun sem KSÍ veitir sem er gullmerki KSÍ. Gullmerkin áttu að vera veitt á N1-vellinum þar sem báðir störfuðu sem þjálfarar Vals. Pétur starfaði sem þjálfari kvennaliðsins og Ólafur sem þjálfari karlaliðsins. Fótbolti.net greinir frá þessu. Ekkert varð úr verðlaunaafhendingunni og er talið að stjórnarmaður Vals hafi komið í veg fyrir að hún færi fram. Klippa: Bestu Mörkin ræða verðlaunaafhendingu „Ef einhver á skilið verðlaun þá eru það þessir tveir kóngar,“ segir Fanndís Friðriksdóttir, fyrrverandi landsliðskona Íslands, í Bestu mörkunum í gær. Fanndís bætir svo við að þeir eigi báðir að fá helling af gullmerkjum og blómum. Helena Ólafsdóttir spurði Fanndísi hvort hún væri búin að tala við annaðhvort stjórnarmann eða Pétur um atvikið. „Nei, en ég ætla að tala við Pétur og gefa honum blóm á morgun og eitthvað gullmerki sem ég finn.“ Fanndís þekkir vel til Vals þar sem hún gekk til liðs við Val 2018 en lagði skóna á hilluna síðasta haust. Pétur Pétursson þjálfaði hana hjá Val en hann gekk til liðsins árið 2017 og stýrði því þangað til 2024. Saman urðu þau Íslandsmeistarar með Val fjórum sinnum og tvisvar bikarmeistarar.
Bestu mörkin Besta deild kvenna Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Argentína - Sviss | Hverjir fá síðasta farseðilinn? Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Fleiri fréttir Argentína - Sviss | Hverjir fá síðasta farseðilinn? Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu „Fengum færi til þess að gera út um leikinn“ „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Sjá meira