Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Ágúst Orri Arnarson skrifar 21. maí 2026 23:02 Ingo Meckes er varaforseti þýska handknattleikssambandsins og samkvæmt BILD vill hann ekki framlengja samning Alfreðs Gíslasonar. Sina Schuldt/picture alliance via Getty Images Varaforseti þýska handknattleikssambandsins hefur verið með vesen í samningaviðræðum við landsliðsþjálfarann Alfreð Gíslason. Nú hefur honum verið skipað að ganga frá nýjum samningi við Alfreð sem fyrst.
Núverandi samningur Alfreðs rennur út eftir HM á heimavelli Þýskalands 2027 en Bild greinir frá því að vilji sé til staðar fyrir eins árs framlengingu, fram yfir Ólympíuleikana í Los Angeles 2028. Ákvörðunin er sögð hafa verið tekin í síðustu viku á fundi forkólfa þýska handknattleikssambandsins. Forstjórinn, forsetinn og deildarforsetinn gáfu allir grænt ljós samkvæmt Bild en varaforsetinn Ingo Meckes var óviss. Meckes er sagður hafa fundað síðustu vikur með Florian Kehrmann, þjálfara Lemgo, og Bennet Wiegert, þjálfara Magdeburg, í von um að sannfæra þá um að taka starfið að sér á næsta ári. Þegar það gekk ekki á Meckes að hafa haft samband við Andy Schmid, þjálfara Sviss, aftur án árangurs. Nú beinast spjótin að varaforsetanum Meckes og samkvæmt Bild hefur honum verið skipað, af hinum forystumönnum sambandsins, að ganga frá nýjum samningi við Alfreð sem fyrst. Alfreð hefur áður lýst yfir áhuga á því að framlengja samning sinn. Hann hefur verið landsliðsþjálfari Þýskalands frá því árið 2020. Undir hans stjórn vann Þýskaland silfurverðlaun á ÓL 2024 og EM 2026. Alfreð Gíslason hefur þjálfað þýska landsliðið í sex ár og unnið tvenn silfurverðlaun. Getty/Federico Gambarini
Þýski handboltinn HM karla í handbolta 2027 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira