„Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 2. júní 2026 09:53 Baldvin Búi Magnússon og Viktor Snær Sigurðsson sáu hvað íslenskur viðburðamarkaður var óskipulagður og ótraustur og bjuggu til lausnina með bókunarvefnum Outro. Tveir vinir sáu glufu á íslenskum viðburðamarkaði þegar kom að bókun listamanna. Þeir ákváðu að fylla upp í hana með bókunarsíðunni Outro þar sem er hægt að bóka listamenn með öruggu móti án milliliða. Nú þegar hafa 160 listamenn skráð sig hjá Outro og vinna þeir félaga í smáforriti.
Vinirnir Baldvin Búi Magnússon og Viktor Snær Sigurðsson fóru að skoða íslenskan bókunarmarkað á síðasta ári og uppgötvuðu vandamál: Þegar maður er að skipuleggja viðburð þarf oft að leita á mörgum stöðum eftir skemmtikrafti og svo eru samskiptaleiðirnar margar og ótraustar. „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti, þetta var gert í gegnum messenger, símtöl, tölvupósta og skilaboð á netinu. Það var engin skotheld og örugg leið til að bóka listamanninn, sérstaklega ef eitthvað myndi koma upp á. Við sáum lausn á þessu vandamáli sem við gátum boðið bæði listamönnum og skipuleggjendum upp á,“ segir Viktor. Þeir félagarnir byrjuðu að vinna að verkefninu síðasta haust og vefsíðan fór í loftið fyrir tveimur mánuðum. Þar geta skipuleggjendur fundið skemmtikrafta, sent fyrirspurnir, fengið verðtilboð og klárað bókun á einfaldan og öruggan hátt. Listamenn hafa skýra yfirsýn yfir fyrirspurnir, tilboð og bókanir. Erfiðast að hanna sjálft bókunarferlið Maður staldrar strax við nafnið Outro sem er enskt orð yfir niðurlagshluta í lagi eða tónverki. Viktor segir nokkrar ástæður hafa verið fyrir nafnavalinu. „Það var ekkert flókin hugmyndavinna á bak við sjálft nafnið. Þetta var eitthvað sem þurfti að tilheyra tónlistarheiminum að einhverju leyti, þurfti að vera eitthvað sem Íslendingar gætu sagt og eitthvað sem er stutt, einfalt og getur höfðað til markaða í öðrum löndum,“ segir hann. Heildarvinnan á bak við sköpun síðurinnar hafi þó verið strembin. „Þetta er búið að taka langan tíma, fyrst þurfti að ákveða útlitið, litina og nafnið, hvað mun skera okkur frá öðrum. Það tók marga mánuði og svo þegar það var komið þurftum við að byrja að hanna alla ferla, hvernig allt virkar og alla skilmála,“ segir Viktor. Stærsta áskorunin við síðuna hafi verið að hanna sjálft bókunarferlið, það er kerfið í kringum það hvernig listamenn eru bókaðir. Baldvin og Viktor hafa unnið ötullega að síðunni síðustu mánuði. „Á íslenska markaðnum eru engar fastar reglur í dag. Stundum er greitt eftir gigg, stundum fyrir, skilmálar eru engir og greiðsluleiðir oft óljósar. Þegar annar aðilinn hættir við, hvort sem það er listamaður eða skipuleggjandi, er nánast ekkert öryggi til staðar. Við þurftum að greina þetta frá grunni. Tala við listamenn og skipuleggjendur, skilja hvernig þetta gengur fyrir sig í dag og ákveða svo hvernig það ætti raunverulega að virka. Á sama tíma máttum við ekki gera kerfið of stíft. Það þurfti að vera nógu sveigjanlegt til að passa við ólíkar aðstæður, hvort sem það er DJ í einkapartýi eða hljómsveit á stóru fyrirtækjahófi.“ Áður en síðan fór í loftið undirbjuggu þeir jarðveginn til að fá listamenn og skemmtikrafta inn á síðuna. „Við heyrðum í öllum sem okkur datt í hug í byrjun. Síðan byrjaði orðið að berast og við byrjuðum að auglýsa líka og þá byrjaði fólk að skrá sig á fullu. Þannig hefur þetta komið til okkar,“ segir hann. Smáforrit á leiðinni Vefsíðan Outro.is er tilbúin og í fullu fjöri en þeir félagar standa í frekari þróun. „Við erum að undirbúa smáforrit (e. app) fyrir listamenn sem einfaldar þetta. Núna fá allir listamenn sms þegar það kemur ný fyrirspurn en við teljum að smáforrit myndi einfalda þetta og þá fengi fólk tilkynningar beint þaðan,“ segir Viktor. „Markmiðið er síðan að reyna að fullkomna þetta eins mikið og mögulegt er. Markaðurinn er stór og við viljum reyna að fá fyrirtæki inn og fleiri einstaklinga til að nota þetta. Núna er komin betri, öruggari og þægilegri leið til að bóka listamenn.“ Þeir félagar eru báðir að vinna annars staðar þannig Outro er hliðarverkefni eins og stendur en kannski breytist það. „Ég er hjá öðrum fyrirtækjum og hinn eigandinn er í annarri vinnu. Þetta er hliðarverkefni eins og er en vonandi verður þetta sjálfbært í framtíðinni,“ segir Viktor.
Tónlist Tónleikar á Íslandi Tímamót Mest lesið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Bíó og sjónvarp „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Fleiri fréttir Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Innipúkunum fjölgar enn Bonnie Tyler er látin Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Söngvari YMCA látinn Halldór Haraldsson er látinn Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Hjartað slær í Hafnarfirði: „Við erum búin að sprengja það alveg utan af okkur“ Quarashi hyggst „Do it again“ Kvennatónlistarhátíð Rodrigo vekur athygli Tónlistargoðsögnin Clive Davis er látinn Jeremy Strong „reivaði“ við Retro Stefson Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Hipsumhaps rýfur þögnina „Ég er skíthræddur“ Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Bonnie Tyler vöknuð úr dái Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Madonna með heitustu dansmynd ársins Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum Sjá meira