Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 22. maí 2026 11:35 Alþjóðaorkumálastofnunin hefur varað við því að verulega gæti þrengt að í orkumálum í lok sumars ef ekki næst að opna fyrir umferð um sundið. Getty/Majid Saeedi Stjórnvöld í Íran og Oman hafa rætt saman um að taka upp kerfi þar sem rukkað yrði fyrir skipaumferð um Hormuz-sund. Viðræðurnar eru ekki síst athyglisverðar í ljósi þess að Oman er bandamaður Bandaríkjanna og Bandaríkjastjórn hefur varað við hugmyndum um gjaldtöku á sundinu.
Þá þykja þær benda til þess að enn sé langt í endalok átaka á svæðinu, þrátt fyrir ítrekaðar yfirlýsingar Donald Trump Bandaríkjaforseta um að málið klárist á allra næstunni. Árásir Bandaríkjanna og Ísraela hafa afhjúpað vald Írana til að hafa áhrif á heiminn allan með því að loka fyrir skipaumferð um sundið. Lokunin, sem felst ekki síst í hótunum um árásir á skip sem fara um sundið, hefur valdið gríðarlegum hækkunum á olíuverði og stefnt afkomu milljóna í hættu þar sem stór hluti alls áburðar í heiminum fer um sundið. Íransstjórn setti nýverið á laggirnar sérstaka stofnun sem mun annast öll mál er varða sundið. Hún hefur nú skilgreint áhrifasvæði sitt og lýst því yfir að öll skip þurfi heimild stofnunarinnar til að fara þar um. Trump hefur farið fram og aftur í afstöðu sinni til gjaldtöku á sundinu; til að mynda gert því skóna að mögulega myndu einhver ríki sameinast um gjaldtöku en einnig viðrað þá hugmynd að Bandaríkin högnuðust á umferð um sundið, sem verðlaun fyrir „sigur“ í átökunum. Í gær sagði hann hins vegar að gjaldtaka væri með öllu óásættanleg. „Við viljum að þetta sé ókeypis,“ sagði forsetinn. „Við viljum ekki toll. Þetta er alþjóðlegt. Þetta er alþjóðleg skipaleið.“ Utanríkisráðherrann Marco Rubio tók í sama streng og sagði ómögulegt að komast að samkomulagi við Írani ef þeir færu að rukka fyrir umferð um sundið. New York Times fjallar ítarlega um málið en samkvæmt frétt miðilsins eru stjórnvöld í Oman sögð hafa skipt um skoðun varðandi mögulegt samstarf við Íran um gjaldskyldu á sundinu þegar þau áttuðu sig á því hversu gróðavænleg hún yrði. Þá eru þau sögð hafa sagst myndu beita sér fyrir því að afla stuðnings við hugmyndina frá Bandaríkjunum og öðrum ríkjum á svæðinu.
Óman Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Pútín sló öll met Erlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Innlent Fleiri fréttir Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Sjá meira