„Við réðum ekkert við þá“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 22. maí 2026 21:58 Jóhannes Karl Guðjónsson hefur ekki stýrt FH til sigurs í Bestu deildinni. Vísir / Hulda Margrét „Erfitt að kyngja þessari niðurstöðu, 5-0, en auðvitað eru Víkingarnir með hörku lið,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, eftir stórt tap gegn Íslandsmeisturum Víkings í Víkinni. Lokatölur 5-0 fyrir heimamönnum þar sem gestirnir voru einum færri nánast allan síðari hálfleikinn.
Jóhannes Karl sá nokkra jákvæða punkta í fyrri hálfleiknum en gæði Víkingsliðsins var hans mönnum ofviða. „Við áttum nokkrar ágætis stöður í fyrri hálfleik og sköpuðum okkur smá, náðum að spila í gegnum fyrstu pressuna hjá þeim og bjuggum til ágætis stöður sérstaklega úti hægra megin hjá okkur þar sem Gils og Arngrímur voru að komast í ágætis stöður. Við fengum tvö til þrjú færi í fyrri hálfleik og þeir refsuðu okkur með gríðarlegum gæðum. Aukaspyrna hjá Gylfa, skot hjá Gylfa, erfitt fyrir okkur að eiga við þessar fyrirgjafir frá þeim þar sem þeir manna teiginn gríðarlega vel. Tvö núll kannski sanngjörn staða í hálfleik en við hefðum alveg kannski getað skorað eitt mark, ég veit það ekki.“ Síðari hálfleikurinn var mun strembnari fyrir gestina. „En svo að missa mann snemma í síðari hálfleik og svo setja þeir fljótlega þriðja markið, þetta var bara orðið virkilega erfitt. Svo ganga Víkingarnir bara á lagið og hörku góðir að halda boltanum og velja sér augnablik til þess að spila í gegnum okkur og út fyrir okkur og taka hlaup aftur fyrir okkur. Við réðum ekkert við þá í seinni hálfleik og við réðum ekkert við þá tíu á móti ellefu.“ Sverrir Páll fékk rautt spjald Sverri Páll Hjaltested fékk rautt spjald snemma í síðari hálfleik fyrir glæfralega tæklingu aftan frá aftarlega á vellinum. Vilhjálmur Alvar Þórarinsson, dómari, var ekki lengi að lyfta rauða spjaldinu upp eftir tæklingu Sverris Páls. En hvað fannst Jóhannesi Karli um atvikið? „Ég veit það ekki, verð að treysta dómara leiksins fyrir því. Mér fannst enginn vera að biðja um það. Ég ætla ekki að vera tjá mig um þetta rauða spjald, dómari leiksins hlýtur bara að hafa rétt fyrir sér í því.“ Enn án sigurs FH eru enn án sigurs, með tvö stig í næst neðsta sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir Þór, þegar átta umferðum er lokið. Aðspurður hvernig FH-ingar ætli sér að spyrna sér frá botninum, þá hafði Jóhannes Karl þetta að segja. „Við höldum áfram að leggja okkur fram. Við höldum áfram að reyna að vera samheldnara og þéttara lið. Við höfum alveg talað um það áður að í svona mótlæti og erfiðleikum þá kemur í ljós úr hverju menn eru gerðir. Það er alveg nokkuð ljóst að við þurfum að standa saman og vera þéttir sem leikmannahópur og allt teymið í kringum liðið. Það er vika í næsta leik í Krikanum á móti Skagamönnum. Við verðum að skilja þetta eftir hérna og taka með okkur það jákvæða. Við verðum fyrst og fremst að standa saman,“ sagði Jóhannes Karl að lokum.
Besta deild karla FH Víkingur Reykjavík Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira