Skoðun

Alþjóðasamstarf í um­hverfis­málum er ekki háð Evrópusambandsaðild

Haraldur Ólafsson skrifar

Þann 18. maí sl. var alþjóðasamstarf í viðskiptum rætt í greinarstúfi í Vísi, í tengslum við hugmynd um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Hér verður farið nokkrum orðum um umhverfismálin.

Nú á tímum eru menn almennt á þeirri skoðun að jörðin sé hnöttur og samfella sé í lofti og sjó, þannig að í mörgum umhverfismálum sé óumflýjanlegt að viðhafa alþjóðlegt samstarf. Með alþjóðlegu samstarfi er vitaskuld átt við samstarf sem flestra ríkja á jörðinni, ekki framsal á stjórnvaldi frá Íslandi til sambands ríkja á meginlandi Evrópu, þar sem um 5% jarðarbúa á heima.

Það er eðli fjölmiðlunar að fjalla mest um það sem út af bregður. Að allt gangi vel og muni ganga enn betur á morgun virðist ekki gera sig sem frétt og fáir heyra af því, nema auðvitað þeir sem vinna við verkin. Á sínum tíma var súrt regn mikið vandamál. Heilu skógarnir skemmdust og fiskar í vötnum dóu unnvörpum. Tekist var á við vandamálið á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og árið 1979 var gerður alþjóðlegur samningur um loftmengun, sem kenndur er við Genf í Sviss. Í kjölfar samningsins og síðari tíma bókana má segja að málið hafi verið leyst. Á svipuðum tíma var unnið að samkomulagi um að koma böndum á útblástur ósoneyðandi efna. Árið 1987 tók í gildi samningur um þau mál sem kenndur er við kanadísku borgina Montreal og hefur ósonlagið hægt og rólega verið að taka við sér. Nú er helst tekist á við að koma böndum á útblástur efna sem stuðla að hækkandi hita lofthjúpsins. Það er viðamikið og dýrt mál sem tekist er á við á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Ísland hefur um hríð verið í samfloti með Evrópusambandinu í þessu máli, en það hefur verið gagnrýnt, m.a. á þeim forsendum á slíkt leiði til kostnaðar án þess að ávinningur í formi minni útblásturs sé alltaf ljós.

Hér eru nefnd þrjú stór umhverfismál sem tekist hefur verið á við með alþjóðlegu samstarfi ríkja heims. Öll þessi mál voru og eru keyrð áfram með farsælu alþjóðasamstarfi. Ísland getur tekið þátt í því sem eitt af tæplega 200 sjálfstæðum ríkjum í heiminum. Aðild að Evrópusambandinu hjálpar ekki í þeim efnum, en getur verið til trafala.

Höfundur er prófessor í veðurfræði og formaður Heimssýnar, félags um fullveldi Íslands.




Skoðun

Skoðun

Barn fyrir bíl

Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar

Sjá meira


×