Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Sindri Sverrisson skrifar 24. maí 2026 11:24 Vestramenn tryggðu sér að lágmarki tvö Evrópueinvígi með bikarmeistaratitlinum síðasta sumar. vísir / ernir Nú er orðið ljóst hvaða sex lið koma til greina sem mögulegir mótherjar bikarmeistara Vestra í fyrstu umferð undankeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta í sumar.
Þrátt fyrir að hafa fallið úr Bestu deildinni síðasta haust þá eru Vestramenn, sem ríkjandi bikarmeistarar, á leið í að minnsta kosti tvö Evrópueinvígi í sumar. Þeir byrja í undankeppni Evrópudeildarinnar en falli þeir úr leik þar færast þeir yfir í undankeppni Sambandsdeildarinnar. Dregið verður í 1. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar þann 16. júní en það er nú þegar ljóst hvaða tólf lið spila þar. Þeim hefur verið skipt í tvo styrkleikaflokka og eru Vestramenn neðstir í þeim neðri, enda aldrei áður spilað í Evrópukeppni. With 🇲🇩 Sheriff winning the 🏆 Cup, all 12 teams in 🟠 UEL Q1 are now confirmed!🇸🇰 Žilina remains the first below the seeding line.👉 Full HOURLY analysis of UEFA seeding positions, projected paths and probabilities in 2026/27 available in our 🕹️ Simulator. pic.twitter.com/oZpJh9mHCm— Football Meets Data (@fmeetsdata) May 24, 2026 Liðin sem Vestri gæti mætt eru sannkölluð stórveldi í sínu heimalandi, sum með ríka sögu úr Evrópukeppnum. Ferencváros frá Ungverjalandi komst í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar í ár en féll þar úr leik gegn Braga frá Portúgal. Qarabag frá Aserbaísjan lék í Meistaradeild Evrópu í vetur og mætti til að mynda Chelsea og Liverpool. Liðið komst í umspil um sæti í 16-liða úrslitum en steinlá þar gegn Newcastle, samanlagt 9-3. Sheriff Tiraspol frá Moldóvu komst síðast inn í aðalkeppni Evrópudeildarinnar tímabilið 2023-24 og mætti þar Roma, Slavia Prag og Sevette í riðlakeppninni en vann ekki leik. Liðið féll út í 2. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar í fyrra, eftir að hafa slegið út Prishtina frá Kósovó og tapað gegn Utrecht frá Hollandi, og féll svo út gegn Anderlecht í 3. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar í kjölfarið. Dynamo Kiev frá Úkraínu á Evróputitla í sínu safni frá árunum 1975 og 1986. Liðið hefur ekki getað spilað heima í Úkraínu síðustu ár vegna stríðsins við Rússa. Dynamo Kiev lék í aðalkeppni Sambandsdeildar Evrópu í vetur og endaði í 27. sæti eftir tvo sigra og fjögur töp, með einu stigi meira en Breiðablik. Hajduk Split frá Króatíu hefur ekki komist inn í aðalhluta Evrópukeppni síðan árið 2011. Liðið hefur fallið út í 3. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar síðustu tvö ár. CSKA Sofia frá Búlgaríu lék síðast í undankeppni sumarið 2023 en féll þá úr leik í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar, eftir samtals 6-0 tap gegn Sepsi frá Rúmeníu. Ákveðið hefur verið að Vestri spili heimaleiki sína í undankeppni Evrópudeildarinnar á Þróttarvelli í Laugardal, þar sem völlurinn á Ísafirði uppfyllir ekki skilyrði UEFA. Samkvæmt frétt Fótbolta.net vonast Vestramenn hins vegar að mega spila á Ísafirði í undankeppni Sambandsdeildarinnar, komi til þess, þar sem kröfur eru minni.
Vestri Evrópudeild UEFA Fótbolti Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Sjá meira