Formúla 1

George Russell úr leik í Kanada

Andri Broddason skrifar
George Russell missir dýrmæt stig í Kanada 
George Russell missir dýrmæt stig í Kanada  Bryn Lennon - Formula 1/Formula 1 via Getty Images

George Russell, ökumaður Mercedes, er úr leik í Kanadíska kappakstrinum eftir minna en hálfa keppni.

George Russell og Kimi Antonelli, liðsfélagar í Mercedes, eru búnir að berjast með kjafti og klóm í kanadíska kappakstrinum um helgina. Þeir voru búnir að taka forystu keppninnar til skiptis þegar bíll Russell bilaði eftir aðeins 30 hringi og þarf hann að hætta keppni.

George Russell var gríðarlega svekktur eftir að hafa stigið úr bílnum sínum, enda er hann að missa dýrmæt stig. Hann er sem stendur í öðru sæti heimsmeistaramóts ökumanna, átján stigum á eftir Antonelli í fyrsta sæti. En með Russell úr leik og Antonelli með gott forskot í fyrsta sætinu má búast við að eftir keppni verði bilið orðið 43 stig.


Tengdar fréttir

Russell á ráspól í Kanada

George Russell ökumaður Mercedes var með hraðasta tímann í tímatökum fyrir Formúlu 1-kappaksturinn í Kanada sem er á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×