Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jón Þór Stefánsson skrifar 25. maí 2026 11:12 Atvikin sem málið varðar áttu sér stað að miklu leyti í Heiðmörk. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í tveggja ára fangelsi, en stór hluti refsingarinnar er skilorðsbundinn, fyrir að nauðga ungri konu í bíl sínum í Heiðmörk í maí 2022.
Manninum, sem heitir Kyle Andrew Tayag, var gefið að sök að kyssa konuna á munn og háls, biðja hana ítrekað um að hafa við sig samræði, klæða hana úr, sleikja og sjúga á henni geirvörturnar, taka um háls hennar og þvinga til munnmaka og láta hana svo fróa sér. Jafnframt sagði í ákæru að hann hafi farið inn á buxur konunnar og sett fingur á kynfæri hennar. Í ákærunni segir að hann hafi engu skeytt þó hún hafi sagt honum ítrekað að hún vildi það ekki, beðið hann um að hætta, ýtt hendi hans burt og öskrað. Kyle neitaði sök, en var sakfelldur fyrir þessa háttsemi, að því undanskildu að hann hafi kysst hana á munninn. Bað frænda sinn um hjálp Unga konan lýsti atvikum málsins þannig að hún hafi verið með yngri fjölskyldumeðlimum sínum þegar Kyle hafi komið, kynnt sig sem Kevin, og hann beðið um að fá að vera með í körfubolta og fengið að vera það. Hún hafi aldrei hitt hann áður. Meðan á leiknum stóð hafi Kyle ítrekað snert hana á hátt sem henni þótti óþægilegur, en hún reynt að láta það ekki trufla sig. Hann hafi verið með veip og hana langað að prófa það. Þá hafi hana einnig langað að prófa kannabis, og spurt hvort hann væri með slíkt. Hún hafi svo fylgt fjölskyldumeðlimunum heim til afa síns og svo farið í bíltúr með Kyle. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu.Vísir/Vilhelm Hann hafi sagt ætla til Hafnarfjarðar, en hún áttað sig á því að hann væri að fara allt aðra leið, sem hann sagði að væri styttri. Hann hefði svo stöðvað bílinn á afskekktu bílastæði umluktu trjágróðri, sem síðar kom í ljós að var í Heiðmörk, og farið að snerta hana og kyssa, og falast eftir samræði við hana. Hún hafi hins vegar látið Kyle vita að hún hefði engan áhuga á því. Svo hafi atvikin farið á þann veg sem lýst er í ákæru. Kyle hins vegar vildi meina að ekkert kynferðislegt hefði átt sér stað milli þeirra. Á meðal gagna málsins voru skilaboð sem konan sendi frænda sínum, þar sem hún sendi honum staðsetningu sína og „Hjálp“ og „Er hrædd“. Ekkert bendi til þess að fjárhagslegur ávinningur hafi ráðið för Að mati dómsins var framburður beggja, ungu konunnar og Kyle, stöðugur. Aðspurður um framburð konunnar sagðist hann telja að um tilbúning væri að ræða, og að mögulega hefði hún ásakað hann með von um að fá fjárhagslegan ávinning. Í dómnum segir að ekkert bendi til þess. Dómurinn lagði framburð konunnar til grundvallar, en hann þótti bæði trúverðugur og í samræmi við gögn málsins og framburð vitna. Líkt og áður segir var Kyle dæmdur í tveggja ára fangelsi. Þar sem dráttur var á meðferð málsins var ákveðið að 21 mánuður af refsingunni skyldi vera skilorðsbundinn til þriggja ára. Þá er honum gert að greiða konunni tvær milljónir króna í miskabætur og tæpar þrjár milljónir króna í annan málskostnað.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira