Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 26. maí 2026 13:52 Valdimar Víðisson er svekktur að vera ekki í meirihluta í Hafnarfirði. Hann mun leita að nýju starfi á næstunni enda aðeins hlutastarf að vera í minnihluta. Vísir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylkingin í Hafnarfirði náðu samkomulagi um meirihlutasamstarf í gær og nú stendur til að kynna málefnasamning á blaðamannafundi í Hamranesi klukkan fimm í dag. Valdimar Víðisson oddviti Framsóknarflokksins er sáttur við störf sín sem bæjarstjóri en finnst miður að vera ekki á leið í meirihluta.
Hinir ýmsu hafa hins vegar gagnrýnt að Sjálfstæðisflokkur hafi ákveðið að fara í meirihlutasamstarf með Samfylkingu, einkum eftir að Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, varaði við vinstri meirihluta í bænum fyrir kosningarnar í grein t.d. í Morgunblaðinu og á samfélagsmiðlum. Þá eru ekki allir Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði á eitt sáttir um samstarfið við Samfylkingu á samfélagsmiðlum. Loks er í gangi undirskriftalisti á Ísland.is, þar sem meirihlutasamstarfi flokkanna þriggja er mótmælt og bent á að Framsóknarflokkurinn, sem fékk þriðja manninn í sveitarstjórnarkosningunum, sé sigurvegari kosninganna. Ríflega 1600 manns hafa nú skrifað undir listann. Meirihlutaviðræðum flokksins og Sjálfstæðisflokks var hins vegar slitið í síðustu viku þegar oddviti Sjálfstæðisflokksins sakaði Valdimar Víðisson, oddvita Framsóknarflokks, um trúnaðarbrest. Valdimar segist ganga sáttur frá borði í dag. „Ég geng stoltur frá þeim verkefnum sem ég hef unnið að og get borið höfuð hátt. Ég hef unnið þetta af heilindum fyrir Hafnarfjörð og Hafnfirðinga. Auðvitað finnst mér miður að, fyrir hönd Framsóknar, að við séum ekki við borðið, enda ótvíræðir sigurvegarar kosninganna. En svona er þetta í pólitíkinni og ekki allt í okkar höndum eins og komið hefur í ljós,“ segir Valdimar. Valdimar hefur verið bæjarstjóri í Hafnarfirði og þangað til í síðustu viku leit út fyrir að hann yrði það áfram. Aðspurður hvort hann hefði ekki átt að haga hlutunum öðruvísi í viðræðum um meirihluta svarar Valdimar: „Ég lít svo raunverulega á að í þessu ferli hafi ég komið fram af heilindum.“ Hann segir að á næstunni fari hann að svipast um eftir nýju starfi en staða bæjarfulltrúa í minnihluta er ekki fullt starf. „Bara núna er ég að fara að taka mér nokkurra vikna frí og svo fer ég að huga að næstu verkefnum og ég hef engar áhyggjur af því. Ég tel mig með þannig starfsreynslu, bæði sem skólastjóri og svo í þessum verkefnum, að ég finni eitthvað spennandi að gera,“ segir hann.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira