Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Jakob Bjarnar skrifar 26. maí 2026 14:36 Magnús, Anna Dóra og Sigfinnur. Forsvarsmenn Vá! - félags um vernd fjarðar, mættu suður og gerðu nefndarmönnum grein fyrir afstöðu sinni, sem er meðal annars sú að fráleitt sé að framselja hættumat siglninga til fiskeldisfyrirtækjanna. Lög séu tilgangslaus sé ekki farið eftir þeim. aðsend Forsvarsmenn félagsins VÁ! – félags um um vernd fjarðar mættu í dag á fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Tilefnið er frumvarp til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga. Fulltrúar VÁ! bentu á að um 70 prósent af núverandi sjókvíaeldi er ólögmætt vegna þess að starfsemi þess gengur í berhögg við núgildandi lög um vitamál.
Katrín Oddsdóttir lögmaður segir, í samtali við Vísi, að borðleggjandi sé að nýtt frumvarp taki ekki á þessu mikilvæga máli. Hún vitnar í forsvarsmenn að austan sem segjast einfaldlega vera að biðja um að landslög gildi fyrir alla og að innlend og erlend löggjöf verði virt. „Við núverandi aðstæður er þetta ekki raunin, heldur er litið fram hjá því að opið sjókvíaeldi sé starfrækt innan hvítra ljósgeira frá vitum, sem núgildandi lög banna. Þetta bann byggir á öryggissjónarmiðum og alþjóðlegum skuldbindingum Íslands um öryggi sjófarenda, og það hefur legið fyrir árum saman án þess að nokkuð sé í því gert,“ segir Sigfinnur Mikaelsson sem er stjórnarmaður í félaginu. Að útvista ekki hættumati til fiskeldisfyrirtækjanna Að sögn Katrínar fór VÁ! einnig fram á að nýtt frumvarp tryggði að hættumat siglinga yrði framkvæmt af Vegagerðinni fyrir öll fiskeldissvæði, en ekki útvistað til fiskeldisfélaganna sjálfra eins og verði hefur. Félagið segir að mismunandi forsendur hafi verði notaðar í áhættumati siglinga, annars vegar á milli landshluta og hins vegar á milli stjórnvalda og fiskeldisfyrirtækja. „Fyrir liggja áhættumöt sem eru afar mismunandi eftir því hvort það voru stjórnvöld eða fiskeldisfyrirtækin sem kölluðu eftir mötunum, sem sýnir skýrt hversu alvarlegt það er að heimila fyrirtækjunum sjálfum að stýra slíkum mikilvægum úttektum, enda eru þau hagsmunaaðilar,“ segir Sigfinnur. Katrín Oddsdóttir lögmaður hefur barist einarðlega gegn sjókvíaeldi.vísir/arnar Anna Dóra Árnadóttir sem einnig sat fundinn fyrir hönd Vá! benti á að fram hefði komið í frétt Heimildarinnar árið 2024 frá forstöðumanni Vegagerðarinnar að stjórnsýslan hefði almennt ekki gefið þessum málum gaum í gegnum tíðina. Þá kom fram í sama viðtali að einhverjar af þeim staðsetningum sjókvíaeldis sem nú eru starfræktar myndu ekki vera samþykktar í dag. „Þetta er dæmi um það hvernig ríkisstofnanir vinna í þessum málaflokki, án þess að taka tillit til siglingaröryggis eða öryggissjónarmiða almennt. Enn þann dag í dag er verið að gera þetta á Vestfjörðum t.d. með nýlegri leyfisveitingu í Arnarfirði í ljósgeira Langanesvita, þrátt fyrir að rekstrarleyfum hafi verið hafnað á grundvelli sams konar sjónarmiða í Ísafjarðardjúpi árið 2024,“ segir Anna. Lög tilgangslaus ef ekki er farið eftir þeim Magnús Guðmundsson, stjórnarmaður VÁ! sagði að félagið hefði krafist þess að rekstrarleyfi fiskeldissvæða innan hvítra ljósgeira vita yrðu einfaldlega felld úr gildi. María Rut Kristinsdóttir er formaður umhverfis- og samgöngunefndar. Umhverfisverndarsinnar hafa furðað sig nokkuð á afstöðu Viðreisnar til sjókvíaeldismála.vísir/vilhelm „Við bentum á að vegna þessa ólögmætis myndi Ríkið mögulega beri alla ábyrgð á tjóni sem kynni að verða vegna slyss ef skip lendir á sjókvíaeldismannvirkjum á svæði þar sem siglingarleiðin á að vera örugg,“ segir Magnús. Félagsmenn VÁ! sögðust hafa fundið fyrir skilningi og áhuga nefndarmanna á að koma þessum málum í lag, enda full ástæða til. „Ég man eftir viðtali við Sigurð Líndal lagaprófessor í sjónvarpinu fyrir nokkrum árum þar sem hann sagði að sama hvaða góðu lög yrðu samþykkt í landinu þá væru þau í raun tilgangslaus ef ekki yrði farið eftir þeim. Það eru því okkar skilaboð til yfirvalda á byrja á því að fara eftir núgildandi lögum þegar það kemur að sjókvíaeldi,“ segir Sigfinnur.
Alþingi Sjókvíaeldi Lögmennska Múlaþing Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira