Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Gunnar Reynir Valþórsson og Lovísa Arnardóttir skrifa 28. maí 2026 07:18 Sigríður Andersen segir þingflokk Miðflokksins ætla að halda umræðum áfram í dag. Vísir/Anton Brink Aukafundur hefur verið boðaður á Alþingi í dag fyrir hádegið þar sem umræðum um boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB verður haldið áfram.
Þingmenn Miðflokksins verða þar væntanlega fremstir í flokki þar sem aðrir flokkar, þar á meðal hinir stjórnarandstöðuflokkarnir Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, hafa lokið máli sínu. Þrír mánuðir þurfa að líða frá því að málið er afgreitt úr þinginu þar til þjóðaratkvæðagreiðsla getur farið fram en enginn þingfundur var á dagskrá í dag og á morgun og því ljóst að tíminn var að renna út ef halda átti upphaflegu dagsetningunni, 29. ágúst næstkomandi. Í gærkvöldi ákvað forseti Alþingis einnig að heimila öðrum þingmönnum en meðlimum utanríkismálanefndar að kynna sér gögn sem forsætisráðuneytið lagði fram en batt trúnaði þannig að einungis nefndarmenn gátu kynnt sér gögnin. Ríkisstjórnin kom saman fyrir tæpum tveimur vikum til að aflétta trúnaði á gögnum sem utanríkismálanefnd hafði óskað eftir í tengslum við aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið á árunum 2009 til 2013. Nefndin hefur síðan haft þau til skoðunar en nú geta allir þingmenn kynnt sér þau. „Það er ástæða til að þakka forseta fyrir að hafa brugðist við þessu erindi sem þingmenn Miðflokksins hafa haldið hér á lofti í nokkra daga, allar götur reyndar síðan þessi gögn voru lögð fram í hinu svokallaða leyniherbergi. En nú liggur það fyrir að öllum þingmönnum gefst tækifæri til þess að kynna sér þessi gögn og það munu þingmenn Miðflokksins gera í fyrramáli,“ sagði Sigríður Á. Andersen þingmaður Miðflokksins í ræðustól Alþingis í nótt þegar klukkan var að verða eitt, en hún átti síðasta orðið áður en þingfundi var frestað. Hvetur ráðherra til að taka þátt í umræðu Hún sagði þingmenn flokksins stefna á að halda umræðum áfram í dag og að hún vænti þess að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra yrði á staðnum og hún hefði eins hvatt aðra ráðherra til að taka þátt og gera grein fyrir sinni afstöðu og þeim samningsmarkmiðum sem þeir sjá fyrir sér varðandi sína málaflokka. „Gera grein fyrir þeim fyrir þjóðaratkvæðagreiðslunni áður en þessi þjóðaratkvæðagreiðsla hefst, fari hún fram núna í lok ágúst. Að þessu sögðu, virðulegur forseti, tel ég eða skilst mér að þessum þingfundi verði frestað. En ég hlakka til umræðunnar sem heldur áfram á morgun.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Utanríkismál Miðflokkurinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Sjá meira