Handbolti

Sigur­steinn barðist við tárin

Valur Páll Eiríksson skrifar
Sigursteinn Arndal er hættur sem þjálfari FH og verður aðstoðarþjálfari Arons Pálmarssonar.
Sigursteinn Arndal er hættur sem þjálfari FH og verður aðstoðarþjálfari Arons Pálmarssonar. Vísir/Diego

Sigursteinn Arndal, fráfarandi þjálfari karlaliðs FH í handbolta, var tilfinningaríkur á blaðamannafundi félagsins í dag. Tilkynnt var að Aron Pálmarsson tæki við liðinu en Sigursteinn myndi færast úr starfi aðalþjálfara í aðstoðarþjálfara.

Sigursteinn fór yfir málin í upphafi blaðamannafundsins í dag og hélt þar stutta tölu. Þar skýrði hann út samskipti þeirra á milli sem urðu til þeirra skipta á störfum. Sigursteinn hafði barist fyrir því að fá Aron inn í teymið á sínum tíma.

Það var bersýnilegt að Sigursteini þykir erfitt að skilja við fyrra starf fyrir sitt nýja hlutverk en hann hefur verið aðalþjálfari FH frá árinu 2019.

Sjón er sögu ríkari en ræðu Sigursteins má sjá í spilaranum, í upphafi fundarins.

Klippa: Sigursteinn barðist við tárin



Fleiri fréttir

Sjá meira


×