Þrír mánuðir til stefnu Bjarki Sigurðsson skrifar 29. maí 2026 12:15 Magnús Árni Skjöld, formaður Evrópuhreyfingarinnar, og Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar, eru afar ósammála um ágæti þess að Ísland gangi í Evrópusambandið. Vísir/Vilhelm Formaður Evrópuhreyfingarinnar segir það gleðitíðindi fyrir alla þjóðina að greidd verði atkvæði um aðildarviðræður að Evrópusambandinu eftir þrjár mánuði. Formaður Heimssýnar segir óljóst hvað bíði kjósi þjóðin já.
Alþingi samþykkti í gær þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um að gengið verði að kjörborðinu 29. ágúst næstkomandi og greidd atkvæði um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þingmenn meirihlutans greiddu atkvæði með tillögunni, þingmenn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks sátu hjá og þingmenn Miðflokks greiddu atkvæði gegn henni. Breytingartillaga utanríkismálanefndar var samþykkt og verður spurningin svohljóðandi: „Á að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Svarmöguleikar verða einfaldlega „Já“ og „Nei“. Breytingartillögur minnihlutans, sem meðal annars sneru að frestun þjóðaratkvæðagreiðslu, voru felldar. Staðreyndarnir tali sínu máli Magnús Árni Skjöld, formaður Evrópuhreyfingarinnar, segir þetta gleðitíðindi fyrir alla þjóðina. „Við fáum tækifæri til að sjá hvað er í boði þegar kemur að því að eiga við dýrtíðina, verðbólguna og háu stýrivextina sem hafa plagað okkur. Ekki síst fáum við tækifæri til að sjá hvað felst í því að vera í klúbbi sem stendur saman í heimi sem er að verða æ ófyrirsjáanlegri,“ segir Magnús. „Við vitum sem svo að staðreyndirnar eru okkur í hag og tala okkar máli. Það verður okkar áhersla að kynna fyrir þjóðinni hvað það er sem þessi klúbbur er að gera, hvernig hann starfar og svo framvegis.“ Óljóst hvaða umboð sé verið að veita Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar, tekur ekki í sama streng. „Okkur hugnast ekki sérlega vel að leggja af stað í vegferð sem miðar að því að framselja stjórnvald á Íslandi í hendur aðila sem ekki eru kosnir af fólkinu í landinu. Það er ósköp einfalt að það virkar best að það sé hægt að kjósa burtu stjórnvöld sem henta ekki,“ segir Haraldur. „Við erum í sjálfu sér ekkert á móti því að fólkið í landinu fái að segja sína skoðun á svona hlutum. Hitt er annað, það þarf að vera ljóst hvað í því felst, hvaða umboð er verið að veita.“
Evrópusambandið Alþingi Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Utanríkismál Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira