„Allir tala um hvað ég er gamall“ Valur Páll Eiríksson skrifar 29. maí 2026 21:47 Kennie Chopart er leikjahæsti erlendi leikmaður í sögu efstu deildar hér á landi og virðist eiga nóg eftir. Hann setti tvö í kvöld og hljóp líklega manna mest. vísir/Lýður „Þetta hefði verið meira gaman ef við hefðum unnið þá aðeins stærra, ég verð að segja það,“ segir Kennie Chopart, sem enn á ný er aðalmaðurinn hjá Fram, í þetta skipti í 4-3 sigri á Breiðabliki í kvöld.
Daninn knái skoraði tvö fyrstu mörk leiksins og þau voru skoruð áður en fimm mínútur voru liðnar af leiknum. Fram komst 2-0 og 4-1 yfir og hefði hæglega getað skorað fleiri, þar á meðal Kennie sjálfur. „Stundum er alveg nóg að skora tvö, það verður að duga í dag. Ég tek kannski þrjú í næsta leik,“ segir Kennie léttur. „Ég hefði viljað klára þetta aðeins fyrr, í stöðunni 4-1 að ná 5-1 og loka leiknum. Í staðinn fyrir að fá þessi tvö mörk á sig og vera í þessari spennu undir lokin,“ segir hann enn fremur. Hlaupatölur þessa 36 ára gamla Dana eru þá rannsóknarefni. Hann spilar 90 mínútur í hverjum leik og þýtur upp og niður kantinn, í vörn og sókn. Hann segir skrokkinn þó fínan í leikslok. „Ég er fínn, mér líður eins og ég sé 25. Allir tala um hvað ég er gamall og bla bla bla, mér líður eins og ég sé 25 ára og geti hlaupið endalaust. Þetta er bara gaman.“ Þannig að þú tekur þér enga sérstaka hvíld í landsleikjahléinu? „Nei, ég væri bara til í að spila á morgun,“ segir Kennie og hlær. Ekki bjuggust endilega margir við því að Fram yrði fimm stigum frá toppnum í þriðja sæti þegar þriðjungur mótsins er búin. En það er staðan. Hvað veldur? „Rúnar er búinn að vera hérna í þrjú ár og við erum búnir að einfalda hlutina. Við erum komnir með góðan hóp og það skiptir engu hverjir detta út og hverjir koma inn. Það eru allir með hlutverk og við erum með virkilega góðan hóp.“
Fram Besta deild karla Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira