Handbolti

Ís­lendingalið Melsun­gen er Evrópu­deildar­meistari

Aron Guðmundsson skrifar
Arnar Freyr í úrslitaleiknum í dag
Arnar Freyr í úrslitaleiknum í dag Vísir/Getty

Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari í handbolta árið 2026. Þetta varð ljóst eftir eins marks sigur liðsins gegn Kiel í úrslitaleiknum í dag. Lokatölur 24-23, Melsungen í vil.

Kiel hafði frumkvæðið framan af í leiknum en þegar að líða tók á seinni hálfleikinn tókst liði Melsungen að snúa leiknum sér í vil en munurinn á milli liðanna var nánast enginn allt til loka leiksins. 

Leiknum lauk með eins marks sigri Melsungen, 24-23 og er liðið þar með Evrópudeildarmeistari í fyrsta sinn í sögunni.

Arnar Freyr Arnarsson skoraði tvö mörk í úrslitaleiknum en Reynir Þór Stefánsson var ekki í leikmannahópi Melsungen í dag. Hann tók þó þátt í undanúrlsitaleiknum í gær gegn Flensburg. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×