Undirbúa íbúafund þar sem farið verði yfir stöðu mála Freyja Þórisdóttir skrifar 31. maí 2026 19:08 Veitur bora eftir heitu vatni við Varmá en íbúar á svæðinu hafa margir lýst yfir miklum áhyggjum af stöðu árinnar og lífríkinu sem framkvæmdirnar kunna að hafa áhrif á. Vísir/Bjarni/Andrés Skúlason Veitur hafa stöðvað borun í Skammadal og vinna nú að undirbúningi upplýsingafundar fyrir íbúa og hagaðila í kjölfar umræðu um mengun í Varmá. Leit að heitu vatni í dalnum, sem er í Mosfellsbæ, hefur valdið litabreytingum á vatninu í ánni. Á vef Veitna segir meðal annars að áhrif á ánna hafi orðið meiri en áætlað var við upphaf framkvæmdanna.
Er þetta meðal þess sem fram kemur á vef Veitna og segir Rún Ingvarsdóttir, samskiptastjóri Veitna, jafnframt að þangað geti fólk leitað til þess að vita hver staða mála sé þar til íbúafundur verður haldinn en vefurinn er reglulega uppfærður. „Við eigum enn eftir að ákveða dagsetningu endanlega en fundurinn verður líklegast seinna í júní,“ segir hún í samtali við Vísi og bætir við að ákvörðunin verði tekin í góðu samtali við bæinn. Þá segir hún einnig að ekki verði haldið áfram að bora í Skammadal fyrr en eftir íbúafundinn en á vef Veitna stendur að „nú sé unnið að undirbúningi upplýsingafundar fyrir íbúa og hagaðila þar sem farið verði yfir stöðu mála, þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í og næstu skref“. Vatnið í ánni hafi orðið brúnleitt Heilbrigðiseftirlit Mosfellsbæjar gerði Veitum að stöðva framkvæmdir fyrir um viku síðan á meðan unnið væri að því að stækka svarfþró, sem er stór skurður sem á að hægja á vatninu, á svæðinu til að grípa betur fínan sand sem kemur upp úr holunni og hefur legið á vatninu og gert það gruggugt. Þá sagði Silja Ingólfsdóttir upplýsingafulltrúi Veitna frá því í samtali við Vísi að þann 26. maí hafi framkvæmdir verið stöðvaðar í sólarhring á meðan unnið var að því að stækka svarfþróna. Á meðan hafi mold borist í ána og því hafi hún fengið á sig brúnleitan lit. „Þegar þú hægir á vatninu hefur þetta fína efni meiri tíma til að setjast á botninn áður en það fer út í ána,“ sagði Silja og útskýrði að „fínefnið, borsvarf, sé bergmulningur sem kemur þegar borinn borar sig niður. Þá sé notað vatn til að ná því upp aftur til þess að það stífli ekki heitavatnsæðarnar sem Veitur eru að leita að. Þá berst það upp og fer í gegnum svarfþrær og bergmulningur sest þá á botninn“. Óháðir sérfræðingar rannsaka sýnin Á vefnum kemur einnig fram að unnið sé með óháðum sérfræðingum og eftirlitsaðilum við sýnatökur, vöktun og mat á áhrifum framkvæmdanna á vatnsgæði og lífríki. Föstudaginn 29. maí var greint frá því að fyrstu prófanir hefðu komið ágætlega út. „Við höldum áfram að finna lausnir á málinu og í dag hafa afmarkaðar, stýrðar prófanir í Skammadal komið ágætlega út. En þetta er einungis fyrsta skrefið í að ná fínustu ögnunum úr vatninu. Nánari greiningar á efnasamsetningu vatnsins eru í vinnslu, en þar skiptir einna mestu máli að fá niðurstöður í af hverju fínefnið hefur ekki botnfallið í svarfþrónni,“ segir í vefuppfærslunni. Enn standa yfir prófanir og í dag var sagt frá því að fyrstu niðurstöður muni nýtast í áframhaldandi vinnu við að ná fínustu ögnunum úr borvatninu.
Umhverfismál Vatn Mosfellsbær Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira