„Engan bilbug á okkur að finna“ Árni Gísli Magnússon skrifar 31. maí 2026 20:46 Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs Akureyri Vísir/Pawel Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs, fannst óþarfi að horfa upp á sitt lið tapa gegn Stjörnunni í dag sem sótti 3-1 sigur norður. „
Bara svekkjandi að fara með 1-0 forystu inn í seinni hálfleikinn og koma ekki alveg nægilega vel stemmdir inn í seinni hálfleikinn. Mér fannst samt algjör óþarfi að tapa þessum leik því að þeir skora náttúrulega draumamark úr aukaspyrnu og svo er þetta mark af 30 metrum á volley upp í skeytin. Ég held að færin hafi verið svona svipuð á báða bóga, þeir náttúrulega stjórna ferðinni, gera það vel og halda vel í boltann, en mér fannst við gera margt vel og svona hægt að setja út eitthvað hjá okkur. Við vorum á köflum svona full kærulausir í augnablikum að halda ekki betur í boltann og gerum aðeins of mikið af mistökum þar.“ „Ég held svona heilt yfir að þetta hafi verið fínt. Ég hefði hefði viljað sjá okkur aðeins orkumeiri en eins og ég segi bara draummark sem klára þetta og svo náttúrulega erum við einum færri hérna í lokin í 20 mínútur sem er kannski full langur tími.“ Christan Jakobsen fékk að líta rauða spjaldið eftir að hann og Guðmundur Kristjánsson fóru haus í haus og Jakobsen ýtti í Guðmund með hausnum. Guðmundur var á gulu spjaldi en fékk ekki sitt seinna og kláraði leikinn. Þórsarar vildu fá vítaspyrnu í aðdragandanum sem olli þessum átökum. „Mig langar ekkert að tala um dómgæsluna. Skrítið að Gummi fái ekki gult skilurðu, sem er þá seinna gula og rautt, því hann er augljóslega að ögra Greko (Christian Jakobsen) skilurðu en það er líka bara rautt og mistök hjá honum en ef ég ætti að kommenta eitthvað þá finnst mér skrítið að hann fái ekki seinna gula þarna á þessu augnabliki fyrir að ögra honum.“ Þórsarar hafa nú tapað sex leikjum í röð og framundan er tveggja vikna pása á deildinni. „Við þurfum að halda haus þrátt fyrir þetta. Tökum bara sex, sjö daga í frí núna og menn aðeins bara kúpla sig út og hvíla sig aðeins og svo komum við bara ferskir inn eftir frí. Mér hefur fundist svona góður bragur á okkur hérna á æfingasvæðinu og í undurbúning fyrir leikina þannig svekkjandi að fá ekkert úr þessu. Það er ekki verið að stúta okkur hérna í þessum leikjum á móti liðunum í kringum okkur, við erum að tapa með einu marki og svo tveimur hérna sem hefði getað verið öðruvísi ef við hefðum sloppið við rauða spjaldið. Við komum bara jákvæðir út úr þessu fríi, við erum að fara spila við FH og ÍBV sem eru þarna í kringum okkur þannig við þurfum bara mæta brattir þangað. Það er engan bilbug á okkur að finna, við bara bætum okkur og komum dýrvitlausir hérna eftir frí, það er klárt.“
Besta deild karla Þór Akureyri Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira