Umdeildum vinstrimönnum meinuð koman til Bretlands Agnar Már Másson skrifar 1. júní 2026 10:49 Frændurnir Hasan Piker og Cenk Uygur eru eru róttækir vinstri menn og þekktir stjórnmálaskýrendur í Bandaríkjunum. Þeir hafa úttalað sig mikið gegn Ísrael og aðgerðum þeirra á Gasaströndinni. Samsett/Getty Bresk stjórnvöld hafa meinað hinum umdeilda bandaríska áhrifavaldi Hasan Piker og frænda hans, stjórnmálaskýrandanum Cenk Uygur, komu til Bretlands. Frændurnir segja að ákvörðunin hafi verið tekin vegna gagnrýni þeirra á ísraelsk stjórnvöld. Bresk stjórnvöld segja það ekki þjóna almannahag að þeir komi til landsins.
Uygur er þáttastjórnandi í netþættinum Young Turks og Piker er vinstri sinnaður áhrifavaldur sem hefur gert garðinn frægan á Twitch. Breska innanríkisráðuneytið staðfestir, að sögn Guardian, að þeim hafi verið meinaður aðgangur að landinu. Til stóð að frændurnir myndu koma fram á hátíðinni SXSW London og að Uygur myndi flytja ræðu í Oxford-háskóla. „Mér hefur verið bannað að koma til Bretlands,“ skrifaði Uygur á samfélagsmiðlum. Cenk Uygur, þáttastjórnandi Young Turks. Getty „Ég reyndi að komast í flug til London til að sækja SXSW London og flytja ræðu í Oxford. Mér hefur verið bannað að koma til landsins fyrir að gagnrýna Ísrael. Erum við enn frjáls? Þetta er kúgun vestrænna ríkisborgara af hálfu okkar eigin ríkisstjórna fyrir hönd annars lands.“ Piker deildi færslu frænda síns og bætti við: „Bretland hefur afturkallað vegabréfsáritunina mína líka. Allt að beiðni Ísraels. Vesturlönd eru að svíkja sín „frjálslyndu gildi“ fyrir erlenda fasistastjórn sem stundar þjóðarmorð. Brátt verðum við öll Ísrael.“ Hasan Piker stjórnmálaáhrifavaldur á Twitch.Getty Í síðustu viku krafðist David Taylor, þingmaður breska Verkamannaflokksins, þess að Piker yrði meinað að koma fram og sagði að viðvera hans í Bretlandi væri „ekki til þess fallin að þjóna almannahag.“ Skipuleggjendur SXSW lýstu Piker sem manni sem væri að „endurskilgreina hvernig stjórnmálaskýringar líta út á stafrænni öld“ en beinar útsendingar hans ná til meira en 30.000 manns á hverjum degi. Piker hefur einnig meira en 3 milljónir fylgjenda á Twitch og meira en 1,5 milljónir á X, fyrrum Twitter. „Ekki að vera til þess fallin að þjóna almannahag“ Piker er engu að síður umdeildur í heimalandinu. Árið 2019 sætti hann meðal annars gagnrýni fyrir að segja að Bandaríkin hefðu átt árásina á tvíburaturnana skilið en baðst síðar afsökunar á ummælunum. Í hlaðvarpinu Pod save America, sem er haldið úti af fyrrverandi ráðgjöfum úr ríkisstjórn Baracks Obama, sagði Piker að Hamas-samtökin væru þúsund sinnum skárri en Ísrael. Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Í síðustu viku hvöttu Community Security Trust, sem eru réttindasamtök gyðinga í Bretlandi, skipuleggjendur SXSW til þess að taka Piker af dagskrá sinni. Samkvæmt umfjöllun Times byggir ákvörðunin um að meina Uygur aðgang á meintum áhyggjum um að viðvera hans kynni að auka á gyðingahatur. Hann hafði haldið því fram að Ísrael stjórni Bandaríkjunum, meðal annars með fjárhagslegum hætti, og verið sakaður um gyðingahatur fyrir vikið. Guardian hefur eftir svari frá breska innviðaráðuneytinu að rafrænar ferðaheimildir (ETA) frændanna hafi verið afturkallaðar á þeim forsendum að viðvera þeirra í Bretlandi kunni „ekki að vera til þess fallin að þjóna almannahag“. „Ákvarðanir um að synja eða afturkalla ETA á þessum forsendum byggjast eingöngu á mati á þeirri hugsanlegu áhættu sem einstaklingur kann að skapa fyrir breskt samfélag. Þar sem umsóknir krefjast frekari skoðunar geta einstaklingar valið að sækja um vegabréfsáritun ef þeir vilja enn ferðast til Bretlands.“
Bretland Ísrael Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Tengdar fréttir Rappsveitin sem sætti hryðjuverkarannsókn sleppur með skrekkinn Breska ákæruvaldið hefur ákveðið að aðhafast ekki í máli írsku rapphljómsveitarinnar Kneecap sem var til rannsóknar hjá lögreglu vegna ummæla sem hljómsveitarmeðlimir létu falla á tónlistarhátíðinni Glastonbury. 18. júlí 2025 18:32 Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Wireless-hátíðinni sem halda átti í Bretlandi í sumar hefur verið aflýst eftir að bandaríska rapparanum Kanye West var meinaður aðgangur að landinu. West hefur verið gagnrýndur fyrir að tjá aðdáun sína á nasistum og Hitler. 8. apríl 2026 11:31 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Innlent Fleiri fréttir Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Sjá meira
Rappsveitin sem sætti hryðjuverkarannsókn sleppur með skrekkinn Breska ákæruvaldið hefur ákveðið að aðhafast ekki í máli írsku rapphljómsveitarinnar Kneecap sem var til rannsóknar hjá lögreglu vegna ummæla sem hljómsveitarmeðlimir létu falla á tónlistarhátíðinni Glastonbury. 18. júlí 2025 18:32
Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Wireless-hátíðinni sem halda átti í Bretlandi í sumar hefur verið aflýst eftir að bandaríska rapparanum Kanye West var meinaður aðgangur að landinu. West hefur verið gagnrýndur fyrir að tjá aðdáun sína á nasistum og Hitler. 8. apríl 2026 11:31