Fasteignamat lækkar að raunvirði Árni Sæberg skrifar 2. júní 2026 11:03 Fasteignamat hækkar mest á Vestfjörðum. Vísir/Vilhelm Heildarmat fasteigna fyrir árið 2027 nemur 17,8 billjónum króna og hækkar um 2,1 prósent á milli ára. Fasteignamat íbúðareigna hækkar um 1,2 prósent á milli ára, en fasteignamat atvinnueigna hækkar um 4,8 prósent. Fasteignamat sumarhúsa hækkar um 4,7 prósent á milli ára. Allar tegundir húsnæðis lækka þannig að raunvirði. Um skýra breytingu er að ræða miðað við síðustu ár.
HMS hefur nú birt nýtt fasteignamat fyrir árið 2027, en stofnunin reiknar það árlega og birtir um mitt ár. Hægt er að fletta upp fasteignamati einstakra fasteigna með því að smella hér, en tölfræði að baki fasteignamatinu má finna í gögnum og mælaborðum fasteignaskrár hjá HMS. „Þetta er nokkuð skýr breyting frá síðustu árum. Þegar við sáum hérna mun meiri hækkanir á íbúðamarkaðnum,“ segir Hugrún Ýr Sigurðardóttir, teymisstjóri fasteignamats hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, í samtali við Vísi. Íbúðarhúsnæði lækkar langmest Í fréttatilkynningu frá HMS segir að fasteignamat íbúða lækki að raunvirði á milli ára, þar sem það hækkar minna en almennt verðlag. HMS hafi áður fjallað um kólnun á fasteignamarkaði á síðustu misserum, en samhliða henni hafi fasteignaverð ekki haldið í við verðbólgu. Á mynd hér að neðan megi sjá hvernig fasteignamat íbúða hefur breyst samanborið við vísitölu íbúðaverðs. Líkt og myndin sýni fylgi breytingar fasteignamats breytingum vísitölu íbúðaverðs eins og við væri búist. Sé litið til breytinga fasteignamats íbúðareigna eftir landshlutum sé mest hækkun á Vestfjörðum, þar sem hún nemi 4,6 prósentum á milli ára. Á höfuðborgarsvæðinu nemi hækkunin 1,0 prósenti á milli ára. Þar sé hækkunin drifin áfram af sérbýlum, en fasteignamat fjölbýla á höfuðborgarsvæðinu standi nánast í stað á milli ára. Atvinnueignir stöðugri Fasteignamat atvinnueigna hækki um 4,8 prósent á milli ára. Hækkunin sé nokkuð meiri en hjá íbúðareignum, en þó minni en almennt verðlag á sama tíma. Á mynd hér að neðan megi sjá hvernig fasteignamat atvinnueigna hefur hækkað samanborið við fasteignamat íbúðareigna, en líkt og sést hafi hækkunin hjá atvinnueignum verið stöðugri á síðustu sex árum. Fasteignamat á iðnaðarhúsnæði hækki mest, en hækkunin þar nemi 5,5 prósentum á milli ára. Hækkunin hjá öðrum flokkum atvinnueigna á milli ára sé nær 4 prósentum. HMS hafi greint frá því á síðasta ári að matsaðferðir fyrir atvinnueignir séu til endurskoðunar. HMS hafi þróað drög að nýjum matsaðferðum í samráði við hagaðila og stefni á að kynna þau síðar á þessu ári. Sumarhús halda matinu uppi Þá segir að fasteignamat sumarhúsa hækki um 4,7 prósent á milli ára og hækki því með álíka hætti og fasteignamat atvinnueigna. Bæði sumarhús og atvinnueignir séu nær því að halda í við verðbólgu heldur en fasteignamat íbúðarhúsnæðis. Fasteignamat sumarhúsa hafi hækkað töluvert á síðustu árum, vegna mikillar verðhækkunar á seldum sumarhúsum. Gera megi ráð fyrir því að verðhækkunin sé vegna mikillar eftirspurnaraukningar miðað við framboð. Líkt og sjá megi á mynd hér að neðan hafi fasteignamatið hækkað samhliða því að færri sumarhús eru til fyrir hvern íbúa. Hægt sé að nálgast tölfræði um fjölda íbúða og sumarhúsa frá árinu 2005 undir gögnum og mælaborðum á heimasíðu HMS. Grindavík ekki með Loks segir að vegna óvissu um framtíðarhorfur og nýtingu eigna í Grindavík liggi fyrir ákvörðun ríkisstjórnar um að leggja fyrir Alþingi frumvarp um að halda fasteignamati í Grindavík óbreyttu á milli ára. Þegar niðurstaða þingsins liggur fyrir muni HMS birta nýtt mat á fasteignum í sveitarfélaginu.
Fasteignamarkaður Húsnæðismál Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Sjá meira